Það er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. En hvernig lítur þorpið út í dag? Hverjir móta sjálfsmynd barna okkar, sjálfstraust þeirra, gildi og sýn á lífið? Erum við sjálf nægilega meðvituð um hvaða veganesti við gefum næstu kynslóð?Þegar ég hugsa til baka sé ég betur hversu margt af því sem hefur orðið mér leiðarljós í lífinu lærði ég sem barn. Margt lærði ég af ömmu minni. Hún sagði gjarnan við mig:„Gefðu af heilum hug. Það er svo gott að geta gefið – og við fáum sjálf til baka, þó það verði kannski síðar.“
Þorvaldur Ingi Jónsson: Lífsrækt – hvernig er „þorpið“ að ala upp barnið?