Við erum að herða tökin á innflytjendamálum og afnema séríslenskar reglur sem hafa verið miklu linari en reglur í nágrannalöndum okkar. Við erum ekki með kröfu um að fólk sem fær dvalarleyfi hér á landi geti séð sér farborða eins og krafist er í öllum nágrannalöndum okkar. Þetta gengur ekki lengur. Verið er að endurskoða allt regluverkið og herða mjög reglur. Herða reglur bæði varðandi kvers er krafist til að fólk geti fengið dvalarleyfi hér en einnig til okkar sjálfra hvernig við tökum á móti því fólki sem fær dvalarleyfi.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Á 10-15 árum gjörbreyttist staðan – fyrrverandi ríkisstjórn lét reka á reiðanum