Thomas Möller skrifar: Við gætum fengið góðan samning - DV

Thomas Möller skrifar: Við gætum fengið góðan samning - DV

Thomas Möller skrifar: Við gætum fengið góðan samning - DV

Alþingi samþykkti í síðustu viku að þjóðin fengi að ákveða næsta skef varðandi aðild Íslands að Evrópusambandinu en 29. ágúst verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við ESB. Þetta verður vonandi bara fyrsta skrefið í vegferð að bættri efnahagslegri velferð Íslands, auknum stöðugleika og sterkari stöðu Íslands á alþjóðavettvangi.

Ísland er þegar með aðild að ESB gegnum EES samninginn sem tók gildi í janúar 1994 en Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn eiga allan heiður af því að hafa komið Íslandi í ESB á þeim tíma. Helstu núlifandi stjórnmálamenn sem stóðu að þessu eru Björn Bjarnason og Jón Baldvin Hannibalsson og eiga þeir hrós skilið fyrir sitt starf í þágu Evrópusamvinnunnar enda var þeim þakkað fyrir þeirra stuðning við ESB aðildina á 10 ára afmælisveislu Viðreisnar um síðustu helgi með langvarandi lófaklappi.

„Samningurinn um evrópska efnahagssvæðið (EES) er vafalítið einn mikilvægasti samningurinn sem Ísland hefur gert á lýðveldistímanum. Hann hefur átt ríkan þátt í aukinni hagsæld þjóðarinnar síðasta aldarfjórðunginn og búið bæði atvinnulífi og almenningi traustara réttarumhverfi“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson þáverandi utanríkisráðherra í skýrslu sem hann lét gera um EES samstarfið árið 2018.

Síðar í formála skýrslunnar sagði Guðlaugur reyndar að „Því er hins vegar ekki að leyna að íslensk stjórnsýsla og löggjafarvald hafa á undanförnum árum tekist á við umtalsverðan vanda við framkvæmd EES-samningsins.“

Nú er kominn tími til að lagfæra galla EES samningsins með fullri aðild að ESB.

Hræðslan við góðan samning

Andstæðingar aðildar Íslands að ESB nýta hvert tækifæri til að gera Evrópusambandið tortryggilegt og vara við fullri aðild. Skoðum nýjustu dæmin.

Þeir fullyrða að kosningarnar í ágúst séu í raun aðildarumsókn sem er rangt. Fullyrt hefur verið að ESB muni hirða alla lífeyrissjóði okkar og senda unga fólkið á Íslandi í Evrópuher sem er einnig rangt. Sagt er að með aðild muni raforkuverð hækka, að við munum missa frá okkur fullveldið og að ESB muni yfirtaka raforku- og sjávarauðlindir okkar sem er rangt.

Staðreyndin er sú að ESB á engar auðlindir og hefur aldrei sóst eftir auðlindum þeirra 27 þjóða sem eru nú í ESB. Aðild mun styrkja fullveldið þar sem við fáum þingmenn og lykilstöður í stjórnkerfi sambandsins í stað algjörs áhrifaleysis með EES samningnum.

Guðni Ágústsson hvetur okkur til að „standa vörð um fjallkonuna og láta ekki nauðga henni.“

Haraldur Ólafsson formaður Heimsýnar gaf í skyn að það yrðu óeirðir í landinu með tilheyrandi ofbeldi ef JÁ yrði ofan á í haust.

Vilt þú ágæti lesandi vera með í þessu liði?

Fullyrt er að í samningum við ESB sé ekkert um að semja. Allt sé fyrir fram ákveðið og að við fáum engar sérlausnir. Sagt er öll völd muni færast til Brussel, að þjóðaratkvæðagreiðslan sé í raun „gerviskoðanakönnun“ sem er alrangt.

Einn þingmaður fullyrti að við hefðum það svo gott á Íslandi að við þyrftum ekki að hafa það betra. Aðild að ESB muni engu breyta. Sama dag kom fram að hæstu húsnæðisvextir í Evrópu og hæsta matvælaverðið væri á Íslandi.

Nýjustu ummælin eru þau að verkfallsréttur launþega falli að mestu niður við aðild og að fiskbúðir muni loka þar sem ESB muni hirða allan aflann. Fullyrt er að atvinnuleysi muni aukast við aðild en staðreyndin er sú að meðal atvinnuleysi í ESB löndum er nú minna en á Íslandi. Í Færeyjum þar sem krónan er bundin við evru er minnsta atvinnuleysi í heiminum og verðbólgan lág.

Það mætti halda að þetta fólk væri búið að sjá samninginn. Svo er ekki enda verður hann afurð margra mánaða samningavinnu okkar við fulltrúa ESB, ef við segjum JÁ í ágúst við að taka upp viðræðurnar.

Þessi virðingarlausa umræða hlýtur að minna okkur á að stjórnmál snúast um staðreyndir, almannahagsmuni, sameiginlega framtíð og getu samfélaga til að ræða ólík sjónarmið af virðingu.

Þessar yfirlýsingar andstæðinga ESB aðildar gefa til kynna að þeir séu fyrst og fremst hræddir við að við Íslendingar náum góðum aðildarsamningi við ESB þegar samningaviðræðum lýkur.

Hvað er góður samningur?

Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst eingöngu um að veita ríkisstjórninni umboð til að ganga til samninga við ESB sem munu líklega taka 12 til 18 mánuði. Samið verður um fjölda mála en margir telja að samningsstaða Íslands sé mjög góð. Ekki síst vegna landfræðilegrar stöðu landsins með tilheyrandi aðgangi að norðurslóðum og mikilvægs hlutverks þess í öryggismálum Evrópu til framtíðar.

Bent hefur verið á að okkur hefur tekist að tryggja sjálfbærar fiskveiðar og nýta orkuauðlindir með sjálfbærum hætti sem ESB hefur eflaust áhuga á að læra af og nýta í Evrópu.

Besti mögulegi samningur Íslands við Evrópusambandið myndi byggja á þeirri grundvallarreglu að sérlausnir eru reglan fremur en undantekningin innan sambandsins, enda á ESB ríka sögu þess að sníða samninga að sérstöðu eyþjóða og strjálbýlla svæða.

Við mætum til slíkra viðræðna sem öflugt og ríkt samfélag með skýra hagsmuni, og ef niðurstaðan verður ekki viðunandi höfum við alltaf það lokaorð að fella samninginn í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Í landbúnaðarmálum gætum við sótt svokallaða norðurslóðaleið en það myndi tryggja að íslenska ríkið gæti haldið áfram beinum styrkjum til bænda ofan á þann stuðning sem kemur frá ESB.

Varðandi sjávarútveg gildir sú grunnregla innan ESB að veiðiréttindi byggja á sögulegri nýtingu. Þar sem engar aðrar þjóðir eiga sögulegan rétt á helstu botnfiskstofnum okkar myndi kvótinn áfram tilheyra Íslendingum.

Fyrir landsbyggðina og innviði myndi strjálbýli landsins opna aðgang að Byggðasjóði ESB, þar sem sambandið fjármagnar allt að þrjá fjórðu hluta af stórum samgöngubótum eins og jarðgöngum og brúarsmíði en nýleg könnun leiddi í ljós að um 80% vegakerfis okkar uppfyllir ekki öryggiskröfur ESB.

ESB aðild mun virka sem öflugt öryggisnet vegna náttúruhamfara en í gegnum Samstöðusjóð ESB, sem hannaður er til að styðja við aðildarríki í kjölfar stórfelldra náttúruhamfara, ætti Ísland sjálfkrafa rétt á ríkulegum fjárstyrkjum til að endurreisa innviði og mæta tjón þegar eldgos eða jarðskjálftar dynja yfir.

Stærsti ávinningurinn fyrir almenning yrði samt á sviði vaxtastigs og verðlags.

Með skýru ferli í átt að upptöku evru myndi krónuálagið hverfa og húsnæðisvextir færast niður í það sem gerist á evrusvæðinu eða í kringum þrjú til fjögur prósent sem mun spara heimilum að meðaltali um eina milljón króna á ári.

Verðlag á matvöru mun lækka verulega vegna niðurfellinga á tollum. Samkeppni á banka- og tryggingamarkaði mun aukast eins og gerst hefur í öllum þeim löndum sem hafa tekið upp evruna.

JÁ í ágúst skiptir máli fyrir framtíðarkynslóðir

Þegar rætt er um Evrópusambandið verður umræðan verður oft persónuleg eins og kemur fram hér að ofan og snýst um sérhagsmuni, einstaka stjórnmálamenn eða flokka.

En ESB aðild er miklu stærra mál en nokkur ríkisstjórn, flokkur eða einstaklingur. Hvort sem fólk er fylgjandi aðild eða andvígt henni ætti umræðan að snúast um staðreyndir, framtíðarsýn og hagsmuni Íslands en ekki um að gera þeim sem hafa aðra skoðun upp annarlegar hvatir.

Lýðræði byggir á því að fólk geti verið ósammála án þess að verða óvinir. Við þurfum ekki öll að komast að sömu niðurstöðu um ESB, en við getum sýnt hvert öðru virðingu á meðan við ræðum málið.

Sú hugsun ætti að leiða okkur áfram í umræðunni um framtíð Íslands eða eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifaði í Morgunblaðið í gær: „JÁ þýðir að við fáum að vita meira, fáum staðreyndir upp á borðið. Ekki bara vangaveltur frá tveimur ólíkum pólum. NEI þýðir að við lokum dyrunum að þeim tækifærum sem aðildarsamningur hefur í för með sér.“

Að lokum þetta: við erum við öll í sama liði. Höfum hagsmuni landsins okkar og næstu kynslóðar í huga þegar við greiðum atkvæði í ágúst.

#gætum #möller #skrifar #thomas #við

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/6/3/thomas-moller-skrifar-vid-gaetum-fengid-godan-samning/

📰 Aðrar fréttir

Viðvörun frá Sameinuðu þjóðunum: El Niño magnast hratt – „Heimurinn kominn á hættusvæði“
📅 03.09.2026 👁️ 0
Viðvörun frá Sameinuðu þjóðunum: El Niño magnast hratt – „Heimurinn kominn á hættusvæði“
Heimurinn er kominn inn á „hættusvæði öfgaveðurs“ þar sem áhrifa El Niño er farið að gæta víða um heim, að sögn António Guterres, framkvæmdastjóra Sam...
Síminn svarar gagnrýni á netinu - Styðjast við gervigreind en starfsmanni í þýðingum hafi ekki verið sagt upp
📅 03.09.2026 👁️ 0
Síminn svarar gagnrýni á netinu - Styðjast við gervigreind en starfsmanni í þýðingum hafi ekki verið sagt upp
Síminn segist notast við gervigreind við þýðingar á efni Sjónvarpi Símans en að þeim starfsmanni sem starfar við þýðingar hafi ekki verið sagt upp. Um...
Segir síðustu daga dótturinnar hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar
📅 03.09.2026 👁️ 0
Segir síðustu daga dótturinnar hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar
Móðir írsku stúlkunnar sem lést í bílslysi á dögunum segir síðustu daga dóttur sinnar, Hönnuh Jane Large, hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar....
Minnist dóttur sinnar sem lést á Ís­landi - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Minnist dóttur sinnar sem lést á Ís­landi - Vísir
Greint var frá því í gær að erlenda stúlkan sem lést ásamt tveimur ungmennum í banaslysi á Krýsuvíkurvegi hafi verið hin átján ára gamla Hannah Jane L...
Trump má enn ekki meina börnum um ríkis­borgara­rétt - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Trump má enn ekki meina börnum um ríkis­borgara­rétt - Vísir
Fyrr á árinu gaf Trump út aðra tilskipun um að börn fólks sem væri einungis tímabundið í Bandaríkjunum eða dveldi þar með ólöglegum hætti yrðu ekki sj...
Kyrr­setja grun­sam­legt rúss­neskt skip á Sval­barða - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Kyrr­setja grun­sam­legt rúss­neskt skip á Sval­barða - Vísir
Prófessor Moltsjanov var kyrrsettur í Barentsburg á Svalbarða í gær á grundvelli dómsúrskurðar, að sögn norska ríkisútvarpsins. Skipið hefur rannsakað...
Á­fram stelpur verða að fé­laga­sam­tökum: Margir ger­endur um hvern og einn þolanda - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Á­fram stelpur verða að fé­laga­sam­tökum: Margir ger­endur um hvern og einn þolanda - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kom í Bítinu á Bylgjunni þar sem rætt var við Aðalheiði Ósk Þorsteinsdóttur. Hún stofnaði Facebook hópinn Áfram stelpur f...
Tekjur landsmanna hækkuðu umfram verðbólgu
📅 03.09.2026 👁️ 0
Tekjur landsmanna hækkuðu umfram verðbólgu
Landsmenn höfðu að meðaltali 10,5 milljónir króna í tekjur í fyrra eða 875 þúsund krónur á mánuði. Helmingur var með heildartekjur undir 730 þúsund kr...
Úr verk­fræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja inn­sæinu“ - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Úr verk­fræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja inn­sæinu“ - Vísir
Margrét Sól er sjálfmenntuð myndlistarkona, fædd og uppalin í Reykjavík, en leið hennar inn í listina var langt frá því að vera bein. Hún er með meist...
Hafnar því að stjórn SÁÁ skipti sér af faglegu heilbrigðisstarfi
📅 03.09.2026 👁️ 1
Hafnar því að stjórn SÁÁ skipti sér af faglegu heilbrigðisstarfi
Formaður SÁÁ vísar ásökunum starfsfólks um að stjórn félagsins hafi afskipti af faglegu starfi á bug. Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ hefur sagt upp...
Ein kona og ellefu karlar í milljarðsklúbbnum
📅 03.09.2026 👁️ 1
Ein kona og ellefu karlar í milljarðsklúbbnum
Ein kona og ellefu karlar í milljarðsklúbbnum Kynja­hlut­fall Há­tekju­list­ans í ár er 20,4 pró­sent kon­ur á móti 79,6 pró­sent­um karla. Það er hæs...
Áttræð móðir Ragnheiðar fékk óvænta kröfu frá Skattinum: „Hvar er mannlegi þátturinn?“
📅 03.09.2026 👁️ 1
Áttræð móðir Ragnheiðar fékk óvænta kröfu frá Skattinum: „Hvar er mannlegi þátturinn?“
Áttræð móðir Ragnheiðar Helgu Skúladóttur hefur verið krafin um endurgreiðslu vegna mistaka sem Skatturinn viðurkennir sjálfur að hafi orðið hjá stofn...
Útlit fyrir sterkasta El Nino í áratugi með miklum öfgum í veðri
📅 03.09.2026 👁️ 1
Útlit fyrir sterkasta El Nino í áratugi með miklum öfgum í veðri
El Nino-veðurfyrirbærið gæti verið mjög öflugt næstu mánuði og á líklega eftir að hafa áhrif á veður víða um heim alveg fram í febrúar. Alþjóðaveðurfr...
Útlit fyrir sterkasta El Niño í áratugi með miklum öfgum í veðri
📅 03.09.2026 👁️ 0
Útlit fyrir sterkasta El Niño í áratugi með miklum öfgum í veðri
El Niño-veðurfyrirbærið gæti verið mjög öflugt næstu mánuði og á líklega eftir að hafa áhrif á veður víða um heim alveg fram í febrúar. Alþjóðaveðurfr...
„Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
„Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ - Vísir
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir laun verða að halda í við verðlag og að kjarasamningsbundin laun hafi hækkað minna en verðbólgan. Það þýði að ve...
Zack Polanski seeks to stand for by-election in former PM Starmer's seat
📅 03.09.2026 👁️ 1
Zack Polanski seeks to stand for by-election in former PM Starmer's seat
The Green Party leader intends to run in the Holborn and St Pancras seat following Sir Keir Starmer's resignation as MP.
Zack Polanski says he'll run for former PM Starmer's seat in by-election

Watch: Another White House renovation? A look at Trump's new helipad
📅 03.09.2026 👁️ 1
Watch: Another White House renovation? A look at Trump's new helipad
The facility will be the first of its kind at the White House - though critics feel it alters the property's historic grounds.
Ólympíufari opnar sig um áralanga baráttu við klámfíkn: „Þetta gjörsamlega braut mig niður“
📅 03.09.2026 👁️ 1
Ólympíufari opnar sig um áralanga baráttu við klámfíkn: „Þetta gjörsamlega braut mig niður“
Breski Ólympíufarinn Freddie Woodward hefur opnað sig um áralanga baráttu við klámfíkn sem hann segir hafa haft áhrif á sjálfstraust sitt, einbeitingu...
Tveir táningar drepnir á Vesturbakkanum
📅 03.09.2026 👁️ 1
Tveir táningar drepnir á Vesturbakkanum
Ísraelskir hermenn drápu tvo drengi í Al-Mughayyir-þorpinu, norðaustur af Ramallah, í nótt. Annar var 16 ára og hinn 19 ára.Ísraelsher réðst inn í þor...
Víð­áttu­mikil lægð fyrir sunnan land - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Víð­áttu­mikil lægð fyrir sunnan land - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að á morgun muni lægðardrag teygja sig yfir landið. Át...
Watch: BBC travels in self-driving Uber around London
📅 03.09.2026 👁️ 1
Watch: BBC travels in self-driving Uber around London
The BBC's Zoe Kleinman takes a ride on Uber's self-driving robotaxi as the service rolls out on Thursday.
All hvasst syðst á landinu
📅 03.09.2026 👁️ 1
All hvasst syðst á landinu
Norðaustan- og austanátt blæs um landið í dag, miskraftmiklar. Hvassast verður syðst á landinu þar sem búast má við allhvössum vindstrengjum fram yfir...
„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir
Eiríkur Guðmundsson starfaði um margra ára skeið á Rás 1 þar sem hann stýrði meðal annars Víðsjá og Lestinni. Þar varð hann einn eftirtektarverðasti ú...
Er hægt að kaupa hamingju fyrir ís­lenskar krónur? - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Er hægt að kaupa hamingju fyrir ís­lenskar krónur? - Vísir
Ein er sú hugmynd sem kann að vera þeim hópi haldreipi í vonbrigðum sínum: Hamingju er hvort eð er ekki hægt að kaupa fyrir peninga. Svo getur þó veri...
AEMET warns of more heat this Thursday in the Canary Islands
📅 03.09.2026 👁️ 1
AEMET warns of more heat this Thursday in the Canary Islands
Temperatures are set to rise across the Canary Islands today (Thursday), with highs reaching 30°C in Tenerife and 32°C in parts of Gran Canaria and Fu...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Úrslitin kalla á ný ráð til að halda sama plani
📅 03.09.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Úrslitin kalla á ný ráð til að halda sama plani
Mynd Hafi eitthvað verið ljóst fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna var
MoD withheld information about nuclear test veterans' records, ex-minister claims
📅 03.09.2026 👁️ 1
MoD withheld information about nuclear test veterans' records, ex-minister claims
Cold War veterans who oversaw nuclear tests have claimed they caused lifelong health problems.
NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gá­leysi Rússa - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gá­leysi Rússa - Vísir
„Leipzig markar nýja stigmögnun á yfirráðasvæði Evrópusambandsins sem rekja má beint til Rússlands,“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastj...
Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 2
Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri - Vísir
Samkvæmt núverandi reglum mega nú börn, 12 ára og yngri, vera úti til 20 en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Samkvæmt lögum má...
Líst ekki á breytingar Ingu á úti­vistar­tíma barna að vetri - Vísir

Passenger vomiting and fainting forces diversion for flight to the Canary Islands
📅 03.09.2026 👁️ 1
Passenger vomiting and fainting forces diversion for flight to the Canary Islands
A Binter flight heading to Gran Canaria was forced to make an unscheduled diversion after a passenger became seriously unwell, suffering repeated vomi...
Eitraður reykjar­mökkur veldur vand­ræðum í Suðaustur-Asíu - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 2
Eitraður reykjar­mökkur veldur vand­ræðum í Suðaustur-Asíu - Vísir
Ástandið er einna verst í borginni Banjarbaru í Indónesíu þar sem skólum hefur meðal annars verið lokað vegna mengunarinnar. Kennari í borginni sagði ...
Eldur í þaki Rima­skóla í nótt - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 2
Eldur í þaki Rima­skóla í nótt - Vísir
„Eldurinn í Rimaskóla byrjaði í millilofti og færðist yfir þakklæðingu og þakkant,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðbo...
Watch: Drop in small boats crossings forces smugglers to adapt
📅 03.09.2026 👁️ 1
Watch: Drop in small boats crossings forces smugglers to adapt
A BBC investigation has found smuggling gangs are running low on small boats, forcing rival gangs to work together and load more migrants on larger bo...
Watch: BBC witnesses 'taxi boat' picking up migrants multiple times in a day

78-year-old swimmer found dead off Lanzarote coast after major search operation
📅 03.09.2026 👁️ 1
78-year-old swimmer found dead off Lanzarote coast after major search operation
A 78-year-old man has been found dead in the sea off Lanzarote after an extensive search was launched when he failed to return from a swim. Emergency ...
Hvíta húsið sagt hafa þrýst á geimferðafyrirtæki að hunsa ráðstefnu í París
📅 03.09.2026 👁️ 1
Hvíta húsið sagt hafa þrýst á geimferðafyrirtæki að hunsa ráðstefnu í París
Hvíta húsið er sagt hafa lagt hart að bandarískum geimferðafyrirtækjum að hafna boði Emmanuels Macron Frakklandsforseta um að mæta á umfangsmikla tveg...
Þjófnaður í þremur verslunum - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 2
Þjófnaður í þremur verslunum - Vísir
Ekki kemur fram nánari staðsetning en lögregla á stöð 1 sinnir verkefnum í Austurbær-Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes, stöð 3 í Kópavogi og Breiðholti o...
El Nino 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
📅 03.09.2026 👁️ 2
El Nino 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
The WMO has warned that the natural weather phenomenon could bring disruption to global economies.
El Niño 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
📅 03.09.2026 👁️ 1
El Niño 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
The WMO has warned that the natural weather phenomenon could bring disruption to global economies.
Varnarmálaráðherra segir af sér vegna mikils klúðurs við skotfærapöntun
📅 03.09.2026 👁️ 2
Varnarmálaráðherra segir af sér vegna mikils klúðurs við skotfærapöntun
Varnarmálaráðherra Eistlands, Hanno Pevkur, sagði af sér í gær vegna rannsóknar á ástæðum þess að skotfærapöntun gerð árið 2024 ætluð Úkraínu barst al...
USS Abraham Lincoln: US sailors unwind in Thailand by shopping and bar-hopping
📅 03.09.2026 👁️ 2
USS Abraham Lincoln: US sailors unwind in Thailand by shopping and bar-hopping
With military haircuts and moustaches, the US sailors stood out against the flip-flops of the usual Pattaya crowd, writes the BBC's Jonathan Head.
Channel smuggling gangs resort to 'mega-dinghies' as crackdown limits small boat supply
📅 03.09.2026 👁️ 2
Channel smuggling gangs resort to 'mega-dinghies' as crackdown limits small boat supply
Once-rival criminal groups are being forced to work together because of a shortage of small boats, a BBC investigation has found. 
Mikið reykjarkóf á tveimur stöðum með stuttu millibili
📅 03.09.2026 👁️ 2
Mikið reykjarkóf á tveimur stöðum með stuttu millibili
Fjórar stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar til um klukkan hálf eitt í nótt vegna mikils reyks sem barst frá þaki Rimaskóla í Grafar...
Alríkisdómari kemur í veg fyrir beitingu tilskipunar sem takmarkar ríkisborgararétt
📅 03.09.2026 👁️ 2
Alríkisdómari kemur í veg fyrir beitingu tilskipunar sem takmarkar ríkisborgararétt
Alríkisdómari í Maryland setti í gær bráðabirgðalögbann á að Trump-stjórnin geti framfylgt nýrri tilskipun sem takmarkar hverjir öðlist sjálfkrafa ban...
Stjórnvöld birta ekki lista yfir gesti við jarðarför Haraldar V í öryggisskyni
📅 03.09.2026 👁️ 2
Stjórnvöld birta ekki lista yfir gesti við jarðarför Haraldar V í öryggisskyni
Yfirvöld í Noregi hafa í öryggisskyni ákveðið að birta ekki lista yfir þá erlendu ráðamenn sem viðstaddir verða útför Haraldar V konungs á miðvikudagi...
Varnarmálaráðherra hvetur brottrekna hinsegin hermenn til að sækja bætur
📅 03.09.2026 👁️ 2
Varnarmálaráðherra hvetur brottrekna hinsegin hermenn til að sækja bætur
Varnarmálaráðherrann Wes Streeting, sem sjálfur er opinberlega samkynhneigður, hvatti öll þau úr röðum hinsegin fólks sem þola máttu brottrekstur úr h...
Úkraínumenn vilja bann við almennri flugumferð um rússneska lofthelgi
📅 03.09.2026 👁️ 3
Úkraínumenn vilja bann við almennri flugumferð um rússneska lofthelgi
Úkraínsk stjórnvöld hafa farið þess á leit við Alþjóðaflugmálastofnunina að hún banni almenna flugumferð aðildarríkja hennar um rússneska lofthelgi.Þe...
Chris Mason: Reform face headwinds as they gather for conference
📅 03.09.2026 👁️ 1
Chris Mason: Reform face headwinds as they gather for conference
The party's continued prominence has brought what prominence always brings: scrutiny, says BBC political editor Chris Mason.