Rútufyrirtækið Flixbus hefur tilkynnt um endurvakningu leiðar 666 til Hel í Póllandi. Endurkoma leiðarinnar, sem er gjarnan kölluð „Highway to Hel“ eða þjóðvegurinn til Hel(jar), hefur verið harðlega gagnrýnd af trúarhópum í Póllandi sem segja leiðina stuðla að djöfladýrkun.
Leið 666 var upprunalega rekin af pólska rútufyrirtækinu PSK Gdynja, sem lét undan þrýstingi og breytti númeri leiðarinnar í 669 fyrir þremur árum. Flixbus hefur tekið við rekstri leiðarinnar og ákveðið að taka aftur upp númerið 666.
Talsmaður Flixbus sagði í viðtali við pólska fjölmiðilinn TVN24 að númerið 666 hefði verið valið í markaðstilgangi með það að markmiði að auka sýnileika þessarar vinsælu leiðar til Hel.
Leið 666 ekur alla leið frá Kraków til vinsæla strandbæjarins Hel, með viðkomu í fjölda borga og bæja, þeirra á meðal höfuðborginni Varsjá.
Pólverjar eru að meirihluta rómask kaþólskir og kirkjan áhrifamikil í landinu. Samkvæmt Biblíunni er númerið 666 númer djöfulsins, og Hel er aðeins einum staf frá enska heiti heljar.