Í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sögðust aðeins fleiri ætla að segja nei við því að hefja á ný aðildarviðræður við ESB. 51,6% sögðust ætla að segja nei en 48,4% já.
Ef lesendur eiga enn eftir að gera upp hug sinn er til dæmis hægt að horfa á umræðuþátt um þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem tekinn var upp í beinni útsendingu á RÚV á fimmtudagskvöld. Þátturinn var rúmlega 80 mínútur og er hægt að nálgast í fréttinni hér að neðan eða í Spilara RÚV.
- Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri og eru með lögheimili hér á landi hafa kosningarétt. Það hafa einnig íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis, ef þeir hafa búið skemur en 16 ár erlendis. Hafi þeir búið lengur en 16 ár erlendis þarf að sækja um til Þjóðskrár að vera tekinn á kjörskrá.
- Til að sjá hvar þú átt að kjósa er hægt að fara inn á vef Þjóðskrár og slá inn kennitölu.
- Kjörstaðir eru víðast hvar opnaðir klukkan 9 og standa opnir til klukkan 22, en nánari upplýsingar um opnunartíma kjörstaða er að finna á vefsíðum sveitarfélaganna.
- Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu er opin frá klukkan 10 til 17 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund. Hér er hægt að finna nánari upplýsingar um opnun utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
- Til að fá að greiða atkvæði verður að framvísa gildum persónuskilríkjum. Það getur verið vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.
Velkomin á fréttavakt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Kjörstaðir verða opnaðir innan skamms, klukkan níu.
Líkt og greint var frá í gær höfðu þegar 23% þjóðarinnar greitt atkvæði utan kjörfundar. Það er meira en áður.
Við ætlum að fylgjast með öllum helstu vendingum á kjördag hér í fréttavaktinni.