Við heyrum frá heitum umræðum á Alþingi og ræðum við tvo þingmenn í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30.
Við spjöllum við splunkunýjan bæjarstjóra Mosfellsbæjar, Hilmar Gunnarsson, í beinni útsendingu.
Forstjóri Flugfélagsins Atlanta og nýr stjórnarformaður, Baldvin Már Hermannsson, segir kaup stærsta fraktflugfélags heims á 49 prósenta hlut gefa Atlanta aukinn alþjóðlegan slagkraft.
Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun og við verðum í beinni þaðan.
Heimsþekkt listakona býður gestum í Listasafni Reykjavíkur að skanna sig inn í tölvu með hjálp tuga myndavéla sem skapar síðan styttu af viðkomandi. Sum verkanna sem eru til sýnis hafa staðið úti í íslenskri náttúru í meira en ár.
Aron Pálmarsson og Sigursteinn Arndal skipta um hlutverk hjá FH næsta vetur. Nú verður Aron aðal og Sigursteinn honum til aðstoðar.
Í Íslandi í dag, vöruhönnuðurinn Sesselja Thorberg. Hún missti vinnuna en eftir það sló hún svo rækilega í gegn með bæði vöruhönnun sinni og innanhússhönnun. Þannig að vinnumissir gerði það að verkum að hún gat látið marga drauma sína rætast og sló þannig í gegn.