Péter Magyar, núverandi forsætisráðherra, hafði hvatt Sulyok til að segja af sér en forsetinn sat sem fastast. Tisza-flokkur Magyar vann hins vegar stórsigur á Fidesz-flokki Orbán í þingkosningunum 12. apríl síðastliðinn og nýtti sér rúman meirihlutann á þinginu til að samþykkja stjórnarskrárbreytinguna.
Sulyok hefur nú fimm daga til að undirrita lögin eða vísa málinu til stjórnarskrárdómstóls landsins. Þess ber að geta í því samhengi að nýr viðauki kveður einnig á um að dómarar við stjórnarskrárdómstólinn sem eru eldri en 70 ára verði að víkja. Forseti dómstólsins kominn yfir aldursmörkin.
Magyar hefur hótað því að hefja kærumeðferð á hendur Sulyok ef hann fer ekki frá.
Þingmenn Fidesz-flokksins gengu úr þingsal áður en atkvæðagreiðslan fór fram en þeir hafa sakað Magyar um grimmdarstjórnun.