„Þetta var fagmannleg frammistaða hjá okkur í kvöld,“ sagði Karl Friðleifur Gunnarsson, leikmaður Víkings, í samtali við mbl.is eftir 5:1-sigurinn á Val á útivelli í Bestu deildinni í fótbolta í kvöld.
„Ég er virkilega sáttur með liðsframmistöðuna. Það er mjög góð orka í okkur þessa stundina og formið hefur aldrei verið betra. Við vorum að gera grundvallaratriðin rétt í kvöld, hlupum mikið, unnum návígi og svo vitum við af gæðunum okkar. Þegar grunnatriðin eru í lagi erum við í toppmálum,“ sagði hann.
En hvað segir það um Víkingsliðið að koma á Hlíðarenda og vinna stórsigur?
„Það sýnir gæðin. Hópurinn er rosalega sterkur og veikist ekkert þegar við förum að skipta heldur bætum við bara í. Það er geggjað að vinna 5:1.“
Bakvörðurinn átti mjög góðan leik og sérstaklega í seinni hálfleik þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp annað.
„Það var kominn tími á þetta. Ég er búinn að vera allt of aftarlega og það var kominn tími á að koma í skotstöður og koma með fyrirgjafir. Ég er sáttur með eitt mark og eina stoðsendingu.“
Karl Friðleifur gaf stoðsendinguna á Óskar Borgþórsson sem skoraði þrennu í leiknum.
„Þessi gæi er allt of góður. Hann hlýtur að fara út eftir tímabilið. Hann er að elska að vera hjá okkur og við elskum hann.
Við erum búnir að æfa þetta. Ég veit af honum á fjær og hann er svo fljótur og þetta var flottur skalli hjá honum,“ sagði Karl Friðleifur.