„Þakklát fyrir öll mín forréttindi“
Þegar Margrét Ísaksdóttir flutti frá Hveragerði ákvað hún að njóta menningarlífsins í borginni.
„Á síðasta ári fluttist ég frá Hveragerði og á höfuðborgarsvæðið sem voru viðbrigði. En mig langaði að vera nær dóttur minni og dóttursyni og taka þátt í þeirra daglega lífi en ekki bara hátíðarstundum. Ég ákvað strax að þetta yrði heillaskref hjá mér og eitt af því sem hefur heillað mig við borgarlífið er hversu auðvelt er að stunda leikhúsin.
Þegar ég var að alast upp stóð mamma mín heitin fyrir leikhúsferðum kvenfélagskvenna. Þá voru keypt árskort til að sjá sem flestar sýningar. Ég var svo heppin að ég fékk oft að fara með, en það kom fyrir að við komumst ekki vegna veðurs eða ófærðar. Ég á margar minningar frá þessum ferðum sem myndu kallast svaðilfarir í dag, þegar verið var að berjast yfir heiðina í snarvitlausu veðri. Í minningunni var heiðin ekki oft lokuð en vonandi erum við skynsamari í dag.
„Það er alltaf val hvernig þú …