Það eru erfiðir tímar fram undan í efnahagslífinu, að mati aðalhagfræðings Arion banka. Það þrengi að heimilum og fyrirtækjum og óvissa mikil. Stýrivextir standa nú í 7,75% og Seðlabankinn spáir 5,5 prósenta verðbólgu á síðasta ársfjórðingi þessa árs og er svartsýnni í sinni verðbólguspá en aðrir greiningaraðilar.
Viðskiptabankarnir eru vanir að skila vaxtabreytingum, hvort sem þær eru til hækkunar eða lækkunar, inn í lánakjör viðskiptavina nokkuð fljótlega eftir að Seðlabankinn breytir stýrivöxtum. 0,25 punkta hækkun stýrivaxta í gær breytir vaxtakjörum bæði fyrir útlán og innlán á næstu dögum. Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka segir Seðlabankann spá mikilli verðbólgu næstu mánuði.
Kólnun kerfisins léttir á pressunni
„Þau eru að spá 5,5% verðbólgu núna á síðasta ársfjórðungi þessa árs sem er nokkuð meira en flest allir aðrir greiningaraðilar eru að gera ráð fyrir en þau ákveða samt sem áður að taka ekki stærra skref en þessa 0,25 punkta hækkun stýrivaxta. Þannig að það var kannski svona það sem kom helst á óvart. En þau færu rök fyrir máli sínu að vissulega er raunhagkerfið að kólna og það ætti að öðru óbreyttu að létta á þessari pressu að þau þurfi að taka stærri skref og létta þá á verðbólgu þrýstingi svona þessum undirliggjandi,“ segir Erna Björg.
Mikil óvissa eigi eftir að einkenna efnahagslífið næstu misserin.
„Það eru svolítið krefjandi ár sem að við erum að ganga í gegnum núna. Þetta er erfitt fyrir heimili og fyrirtæki. Vextir eru háir og eru að hækka. Verðbólga er mikil. Atvinnuleysi er að aukast. Það er verið að þrengja að hagkerfinu. Þannig að það má alveg gera ráð fyrir því að þetta verði krefjandi ár og erfiðir tímar sem við erum að fara inn í,“ segir Erna Björg.