Vegurinn yfir á Rauðasand á sunnanverðum Vestfjörðum er svo illa farinn að ferðamenn veigra sér við akstrinum. Búist er við að fjöldi ferðamanna leggi leið sína á Rauðasand í sumar þegar almyrkvi verður á sólu.
„Það er varla hægt að tala um veg. Það gleymdist alveg að opna vatnsrásirnar þegar fór að hlána og honum var í raun bara leyft að renna burt með rigningarvatninu,“ segir Ástþór Skúlason, bóndi á Melanesi á Rauðasandi, sem rekur þar tjaldstæði á sumrin.
Hann segir veginn frá Patreksfirði yfir á Rauðasand helst færan jeppum eftir vorleysingarnar. Að hans sögn eru ferðamenn áhyggjufullir og hann fær tölvupósta oft á dag þar sem spurt er um ástandið á veginum. „Þetta fer svo náttúrulega beint á netið þar sem fólk er hreinlega varað við að vera að leggja leið sína hingað.“
Eftir samskipti við Vegagerðina komst Ástþór að því að eina viðhaldið sem gert er ráð fyrir í sumar er heflun á köflum. Ástþór segir það duga skammt þegar ofaníburðinum hefur skolað burt. „Það náttúrulega þýðir ekkert að senda hefil á þetta, það er bara klöppin og stórgrýtið eftir.“
Ferðamenn eru þegar farnir að leggja leið sína vestur en Ástþór gerir ráð fyrir að mesta umferðin verði í ágúst í kringum sólmyrkvann. Hann á von á um 700 manns dagana sem sólmyrkvinn stendur yfir.
Til þess að svo megi verða segir Ástþór nauðsynlegt að gera verulegt átak í vegamálum. Tryggja þurfi öryggi gesta og aðgengi viðbragðsaðila.