Jón Magnús Jónsson, bústjóri á Reykjabúi, telur líklegt að sami einstaklingur og braust inn í búið í fyrrinótt hafi reynt að brjótast inn áður, eftir það atvik hafi öll kerfi verið tekin í gegn.
„Þá tókum við allt í gegn og töluðum við starfsfólk og létum vita, fórum yfir alla þætti hérna hjá okkur og þess vegna kannski varð ekki meira tjón en það varð núna.“
Yfir 6000 fuglar, bæði kjúklingar og kalkúnar, eru hýstir á Reykjabúinu. Brotist var inn í öll fjögur hús búsins. Spellvirkinn gekk á milli húsa og gerði tilraun til þess að koma fuglunum út. Jón Magnús Jónsson, bústjóri á Reykjabúinu, segir innbrotið hafa verið þaulskipulagt.
„Hann gengur beint til verks þar sem hann getur ekki opnað með því að pikka upp lásana svo hann sækir bara kúbein og hleypur hérna í gegnum.“
Ekki varð mikið eignatjón en öll sóttvarnarlög voru brotin í innbrotinu. Ef veiki berst í fuglana er tjónið svakalegt, segir Jón.
„Hann hleypur hérna inn á einhverjum stígvélum og einhverjum fötum fram og til baka og er hérna á hlaðinu og út um allt, brýtur allar sóttvarnareglur, ef hér berst inn einhver veiki fyrir fuglana og annað slíkt, þá er þetta ekki dýravelferð, því miður.“
Jón og annað starfsfólk var skjótt komið á vettvang og gat því lokað þeim húsum sem höfðu verið opnuð. Jón þakkar fyrir að hafa náð að bregðast svo skjótt við, hæglega hefði verr getað farið.
Þurftu að aflífa fugla sem bornir voru út
Reykjabú er elsta starfandi alifuglabú landsins og á búinu eru um 6000 fuglar. Spellvirkinn opnaði dyr á öllum fjórum húsunum. Jón segir að á myndefni úr öryggismyndavélum sjáist einstaklingurinn bera fugla út. Nokkra fugla þurfti að aflífa.
„Það er mið nótt hjá fuglunum og þeir eru ekkert að hugsa um að fara neitt að hreyfa sig. Þetta olli náttúrulega miklu uppþoti svona í stíunum. En við komum sem sagt fljótlega á vettvang og náum að loka öllu og nokkrir fuglar voru komnir út sem hann hefur sennilega þá borið út og við þurftum því miður að aflífa þá.“
Ekki varð mikið eignatjón að sögn Jóns en engar sóttvarnarreglur voru virtar og fuglarnir því í mikilli hættu ef veiki berst í þá, „þá er þetta ekki dýravelferð, því miður,“ segir Jón.
Lögregla með málið til rannsóknar
Grunur er um að sami maður hafi verið að verki á Reykjabúi og braust inn á bú Stjörnugríss í maí. Spellvirkinn skildi eftir sams konar yfirlýsingu á báðum stöðum, yfirlýsingin á Reykjabúinu var þó illskiljanleg en hún hafði verið skilin eftir í stíu kalkúnanna á búinu.
Lögregla er með bæði málin til rannsóknar en rannsókn á innbrotinu í Reykjabúið er enn á frumstigi. Innbrotin í Stjörnugrís og í Reykjabúið eru ekki rannsökuð samhliða enn sem komið er.