Meta, fyrirtækið sem á og rekur Facebook og Instagram samfélagsmiðlana, hefur ekki gætt að þeim mögulegu neikvæðu áhrifum sem hönnun þessara miðla getur haft á notendur þeirra.
Þetta kemur fram í frumniðurstöðum rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur látið gera á Facebook og Instagram, og birtar voru í morgun.
Í þessum niðurstöðum kemur fram að hönnun Facebook og Instagram, meðal annars að beina klæðskerasniðnu efni að notendum, sjálfvirk spilun (autoplay) og sífellt skroll leiði til óheilbrigðrar notkunar á þessum miðlum og netfíknar.
Fram kemur einnig að Meta hafi ekki tekið tillit til upplýsinga sem liggja fyrir um notkun barna og unglinga á þessum miðlum, og hvernig hönnun þeirra geti leitt til óhóflegrar notkunar.
Rannsóknin er gerð á grundvelli DSA (Digital Services Act) sem er víðtæk reglugerð Evrópusambandsins um starfsemi netfyrirtækja. Unnið er að innleiðingu þessarar reglugerðar á Íslandi, samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Meta fær nú tækifæri til að svara þessum frumniðurstöðum, en verði sjónarmiðin ofaná sem greint er frá núna, gæti rannsóknin leitt til þess að Meta verði sektað um allt að sex prósent af heildarveltu fyrirtækisins á heimsvísu. Í fyrra velti Meta um 200 milljörðum bandaríkjadala, sem var um fimmtungi hærri upphæð en árið áður.