Telja mikil­vægt að fyrir liggi hvað felst í fram­sali yfir­ráða - Vísir

Telja mikil­vægt að fyrir liggi hvað felst í fram­sali yfir­ráða - Vísir

Telja mikil­vægt að fyrir liggi hvað felst í fram­sali yfir­ráða - Vísir

Í nýrri greiningu á vef SFS segir að velgengni Íslendinga í sjávarútvegi byggist á yfirráðum yfir sjávar­­­­auðlindinni og markvissri fiskveiðistjórnun, sem grund­vallist á vísindum. 

„Aðild að ESB yrði grund­­vallar­breyting á því fyrirkomulagi þar sem stórlega yrði dregið úr forræði landsins á ákvörðunum sem nú eru teknar með hags­muni Íslands í fyrir­rúmi. SFS telur mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfir­ráða yfir fiskveiðiauðlindinni og afleiðingunum af því, áður en kosið verði um áfram­haldandi aðildarviðræður við ESB.“

Markmiðið þegar verið sagt að tryggja full yfirráð

Þess ber að geta að forsvarsmenn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa ítrekað sagt að markmið í mögulegum aðildarviðræðum við ESB yrði meðal annars að Ísland héldi fullum yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni.

Þá kom Kristrún sjálf inn á það í viðtali á Bylgjunni í vikunni:

„Auðvitað verður það útgangspunktur þessara samningsviðræðna og mér finnst það mjög raunhæfur útgangspunktur, að eitthvað sem við höfum veitt í áratugi og enginn annar hefur reynslu af að veiða, falli ekki undir önnur yfirráðasvæði og þurfi ekki að vera hluti af þessari sameiginlegu stefnu, svona tæknilega séð.“

„Fram hjá því yrði ekki komist“

Í greiningunni segir að verndun sjávar­auð­linda falli undir óskiptar vald­heimildir sambandsins innan sam­eigin­legrar fisk­veiði­­stefnu ESB, sem þýði að forræðið á auð­lindinni sem vannst með útvíkkun lögsögunnar og þorskastríðum í kjölfarið færi þar með úr höndum Íslendinga.

Aðildar­ríki ESB geti ekki hvert fyrir sig sett reglur á sviði sjávar­auðlinda nema til þess komi sérstök heimild frá ESB. Á vettvangi ESB sé meðal annars ákveðinn leyfilegur heildarafli einstakra stofna og skipting hans milli aðildar­ríkja, reglur um tækni­legar verndarráðstafanir, veiði­tímabil og veiðar­­færi.

Þá fari ESB einnig með forræði á samningum gagnvart utan­að­komandi ríkjum í málum sem falla undir sam­eiginlegu fisk­veiði­stefnuna. 

„Ef Ísland væri hluti af ESB væru ákvarðanir sem nú eru teknar á Íslandi, með íslenska hagsmuni að leiðarljósi, teknar út frá hagsmunum ESB. Fram hjá því yrði ekki komist.“

Sáralítið vægi

Í greiningu SFS segir eftir mögulega inngöngu í ESB hefði Ísland sáralítið vægi í ákvarðanatöku sambandsins enda yrði það eitt fámennasta aðildarríki ESB. Vægi Íslands væri á bilinu 0,09 prósent til 3,57 prósent, eftir því hvort miðað væri við íbúafjölda eða fjölda aðildarríkja. Vægi Íslands yrði enn minna við áframhaldandi stækkun sam­bandsins.

Flestar ákvarðanir í ráðherraráðinu séu teknar með auknum meirihluta, þar sem samþykki þurfi bæði frá að minnsta kosti 55 prósent aðildar­ríkja og ríkjum sem standa að baki minnst 65 prósent íbúafjölda. Fjögur fjölmennustu ríkin, Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Spánn, hafi samanlagt um 58 prósent íbúa ESB.

Á Evrópuþinginu byggist ákvarðanir almennt á meirihluta greiddra atkvæða. Þar fengi Ísland líklega lágmarksfjölda þing­sæta, sex sæti, eða 0,83 prósent af núverandi fjölda þingsæta. Þá fengi Ísland einn fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB. Honum bæri þó að gæta hagsmuna ESB í heild en ekki Íslands sérstaklega.

„Þótt Ísland gæti haft áhrif á mótun sjávarútvegsmála gæti ríkið ekki eitt og sér tryggt að niður­stöður tækju mið af íslenskum hag­smunum, þótt ríkir væru. Formleg þátttaka í ESB tryggir „sæti við borðið“ en því fer fjarri að því sæti fylgi sérstakt ákvörðunarvald.“

Vel þekkt að togstreita skapist

Almenna reglan innan ESB sé sú að aflahlutdeild hvers ríkis taki mið af veiðireynslu. Vel sé hins vegar þekkt að togstreita skapist þegar ríki með stór hafsvæði og gjöful fiskimið telji að aflaheimildir þeirra endurspegli ekki vægi þeirra stofna sem finnast innan lögsögu þeirra. ­

Spánn og Frakk­land hafi bæði hlut­fallslega stór haf­svæði og mikinn heildarafla. Holland og Dan­mörk hafi mikla hlutdeild í afla en hlut­fallslega lítil hafsvæði. Þá hafi ríki eins og Írland hlutfallslega stórt hafsvæði en lítinn afla.

„Ýmislegt getur skýrt þennan mun, til dæmis hversu gjöful miðin eru innan hafsvæðis hvers ríkis, hvaða fisktegundir halda sig þar og hversu hátt hlut­fall af afla ríkjanna kemur frá eigin hafs­væðum. Aðildarríki geta jafnframt stundað veiðar innan hafsvæða hvers annars. Þá geta einnig utan­aðkomandi ríki veitt innan aðildarríkja hafi þau til þess heimildir frá ESB. Meginregla ESB um frjálsa fjármagns­flutninga hefur gert það að verkum að aðilar geta óhindrað fjárfest í sjávarútvegi og afla­heimildum á milli aðildar­ríkja.“

Ríki geti orðið undir

Við inngöngu í ESB færist samningsumboð vegna deilistofna til ESB. Ísland færi þá ekki lengur eitt með ákvörðunar­vald sem sjálfstætt strandríki gagnvart öðrum ríkjum. Þá geti komið upp aðstæður þar sem ESB þarf að samræma ólíka hagsmuni aðildar­ríkja við gerð alþjóðlegra fiskveiði­samninga.

Í slíkum samningum gæti sambandið til að mynda ákveðið að gefa eftir hlutdeild í tilteknum stofni sem Ísland hefur verulega hagsmuni af, svo sem loðnu eða norsk-íslenskri síld, í skiptum fyrir hlutdeild í stofni sem önnur aðildarríki en Ísland nýta og njóta góðs af. Ísland gæti því ekki eitt tryggt eigin hags­muni og gæti því orðið af verulegum verð­mætum.

„Nýlegur samningur ESB og Noregs um gagnkvæman aðgang að veiðisvæðum innan hafsvæðis hvors annars sýnir hvernig eitt ríki getur borið skarðan hlut frá borði í samningum ESB í sjávar­útvegsmálum. Í samningnum felst að Norðmenn fá að veiða allt að 50 þúsund tonn af eigin kvóta í kolmunna á til­greindum haf­svæðum innan ESB. Á móti fá ríki ESB að veiða 13,5 þúsund tonn af eigin kvóta í norsk-íslenskri síld innan lögsögu Noregs. Svæðið sem Noregur fær aðgang að hefur að geyma ein gjöfulustu kolmunna­­mið innan ESB en svæðið er þó að mestu innan írskrar lögsögu.“ 

Þrátt fyrir að hafsvæði Írlands vegi þungt í skiptunum sé hlutur þess í heimildum til ESB aðeins 12 prósent. Til saman­burðar sé hlutur margra annarra ríkja hærri, til dæmis fái Danmörk 44 prósent og Holland og Svíþjóð 16 prósent hvort um sig. Til viðbótar telji forsvarsmenn írskra útgerða ­­skiptin enn óhagstæðari þar sem óhagkvæmt sé fyrir írsk skip að sækja svo litlar heimildir í norsk-íslenskri síld til Norður-Noregs.

Aðild tryggi ekki afgerandi áhrif

Loks segir að árangur Íslands í sjávarútvegsmálum byggist á því að þjóðin hefur sjálf farið með yfirráð yfir sjávarauð­lindinni. Á þeim grunni hafi ákvarðanir um fiskveiði­stjórnun verið teknar og hags­munir þjóðarinnar hafðir í fyrirrúmi. Það gildi hvort sem um ræðir ákvarðanir um heildarafla, verndun fiski­stofna eða í samningum við erlend ríki. Þessi staða myndi gjör­breytast með aðild að ESB þar sem valdheimildir færist til stofnana þar sem vægi Íslands yrði lítið.

„Sagan sýnir að formleg þátttaka innan ESB tryggir hvorki afgerandi áhrif né að hagsmunir einstakra ríkja ráði för. Fiskimið eins ríkis geta jafnvel orðið skiptimynt fyrir hags­muni annarra ríkja. Fyrir hagsmuni Íslands felst veruleg áhætta í því að færa vald frá landinu í sameiginlegt kerfi þar sem vægi í ákvarða­na­töku yrði takmarkað.“

„Aðild Íslands að ESB myndi færa mikilvægar valdheimildir til stofnana sambandsins, þar sem Ísland hefði lítið vægi og gæti ekki tryggt að ákvarðanir tækju mið af íslenskum hags­munum.“

Því ætti Ísland, að mati SFS, ekki að láta frá sér full og óskoruð yfirráð yfir auðlindum sjávar. Verði engu að síður kosið að halda áfram aðildarviðræðum sé nauðsynlegt fyrir íslensk stjórn­völd að tryggja að:

  • Ísland standi utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB
  • ákvörðunarvald um heildarafla, úthlutun aflaheimilda, aðgang að fiskimiðum og verndarráðstafanir verði í höndum Íslands
  • Ísland fari með samningsforræði vegna deilistofna
  • reglan um hlutfallslegan stöðugleika, hagstæða upphaflega úthlutun eða pólitísk fyrirheit komi ekki í stað varanlegra yfirráða yfir auðlindinni
#fyrir #hvað #liggi #mikilvægt #telja


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262917885d/telja-mikilvaegt-ad-fyrir-liggi-hvad-felst-i-framsali-yfirrada

📰 Aðrar fréttir

Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
📅 24.09.2026 👁️ 0
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
Íbúum í Setberginu í Hafnarfirði brá verulega síðdegis í gær þegar lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför í hverfinu og um tíma var báðum ökutækjum ek...
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
📅 24.09.2026 👁️ 0
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
Tékknesk-íslenska tónlistarkonan Marketa Irglová greinir frá síðasta tónlistarverkefninu sem hún og hinn írski Glen Hansard unnu að áður en hann lést ...
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
📅 24.09.2026 👁️ 0
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
Útköll sérsveitar ríkislögreglustjóra hafa sjöfaldast frá 2014 en sveitin er ekki fullmönnuð. Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu ...
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
„Þarna er verið að fjalla um tæplega 60% af okkar rekstrarfjármagni og það náttúrulega segir sig sjálft að þar svona staldra ég við,“ segir hann í sam...
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
Í stuttu máli varðar dómur Hæstaréttar að kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 hafi fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorl...
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
📅 24.09.2026 👁️ 0
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
Nýtt áhættumat frá leyniþjónustu danska hersins gerir ráð fyrir að ógnin frá Rússlandi verði meiri á næstu mánuðum gagnvart NATO og Vesturlöndum. Þett...
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
📅 24.09.2026 👁️ 0
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
Björgunarsveitir frá Stokkseyri og Árborg sinntu útkalli vegna skemmuþaks sem virtist ætla að fjúka af í heilu lagi.Skemman er við bóndabæ austan við ...
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
📅 24.09.2026 👁️ 0
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
Former England striker Andy Carroll reveals he was sexually assaulted in 2021, by a man who has subsequently been jailed for three years.
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna Fréttin24. september 2026Aðsend grein, Innlent, RÚV, TransmálLeave a Comment Samsett mynd: Fh. Ragnar Bjarnason, Eldur ...
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
📅 24.09.2026 👁️ 1
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
Rúta með rétt um 40 grunnskólabörnum innanborðs fór út af veginum ofarlega á Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun.Í tilkynningu frá L...
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
📅 24.09.2026 👁️ 1
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hef...
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
📅 24.09.2026 👁️ 1
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
Barnastjarnan Julianna Rose Mauriello, sem í mörg ár fór með hlutverk Sollu Stirðu í barnaþáttunum um Latabæ, hefur gerbreytt um stefnu í lífinu. Maur...
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
RÚV hefur birt skilaboðin sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann var mennta- og barnamálará...
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
„Þetta er að koma fram núna út af því sem hefur gengið á undanfarið, bæði vegna yfirlýsinga Ingu en líka yfirlýsinga frá Ragnari Þór þar sem hann svar...
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
Cardiff's Principality Stadium will host Anthony Joshua and Tyson Fury's all-British heavyweight fight on 11 December.
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
📅 24.09.2026 👁️ 1
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
Börnin sem voru í rútunni sem ekið var út af veginum á Fagradal í morgun voru grunnskólabörn úr þremur skólum í Múlaþingi. Þau voru á leið á Starfames...
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð Að­stoð­ar­kona Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar, fyrr­ver­andi barna- og men...
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
Fyrsta alvöru haustlægðin gengur nú yfir landið og hafa fleiri viðvaranir bæst við þær sem gefnar voru út í gær. Veðurfræðingur segir spár hafa gengið...
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mætast...
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
📅 24.09.2026 👁️ 1
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
African elephants use dozens of different medicinal plants to treat themselves and their families when they are sick, research reveals.
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Jeppe Bruus varnarmálaráðherra, Thomas Ahrenkiel yfirmanni leyniþjónustu danska hersins og Michael ...
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 1
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
A new €5.14 million beach surveillance, rescue and assistance service has been launched by Arona Council, bringing longer lifeguard hours, additional ...
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
📅 24.09.2026 👁️ 1
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
The satellite station is used in part to provide internet coverage to neighbouring Ukraine, the government says.
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Austurfrétt greindi fyrst frá. Björgunarsveitir frá ...
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
📅 24.09.2026 👁️ 1
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra, þrýsti á hann...
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlen...
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
📅 24.09.2026 👁️ 2
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar Fréttin24. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skr...
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
📅 24.09.2026 👁️ 2
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri h...
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við S...
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
Móðir segist viss um að verri skiptiaðstöðu sé varla hægt að finna á Íslandi en í verslunarmiðstöðinni við Krossmóa í Reykjanesbæ. Hún vakti athygli á...
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum segja að umræða um hormónameðferðir barna séu á villigötum, hafna læknarnir því að kynin séu b...
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og tr...
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét ástr...
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 2
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
Three people have been arrested after three gold bars worth around €12,000 were stolen from a home in La Laguna while renovation work was being carrie...
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
📅 24.09.2026 👁️ 2
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar...
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
📅 24.09.2026 👁️ 2
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
The Hawk T2 aircraft had been flying out of the RAF Valley station when it plummeted to the ground.
Crashed RAF jet 'steered away from houses' before pilots ejected on Anglesey
📅 24.09.2026 👁️ 0
Crashed RAF jet 'steered away from houses' before pilots ejected on Anglesey
Group Captain Gez Currie said the pilots were in hospital being cared for and were with their families.
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
Birgitta Haukdal er þekkt fyrir skemmtilegan klæðaburð á tónleikum og gaf hún ekkert eftir á því sviði í þættinum. Hún mætti í raun klædd sem fimleika...
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
Greint var frá því í morgun að á Landspítala sé nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð e...
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.Þetta s...
Xi fékk óvenju góðar móttökur hjá Trump
📅 24.09.2026 👁️ 2
Xi fékk óvenju góðar móttökur hjá Trump
Xi Jinping, forseti Kína, kom til Bandaríkjanna í gær. Hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu síðar í dag.Það vakti athygli að ...
Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 2
Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife
HomeTenerifeDrunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife 24-09-...
Skortir fólk til að ná tökum á stjórn­lausri ebólu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Skortir fólk til að ná tökum á stjórn­lausri ebólu - Vísir
AP fréttaveitan hefur eftir Marie Roseline Belizaire, yfirmanni neyðarviðbragða í Afríku hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO), að enn sé ekki búi...
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
📅 24.09.2026 👁️ 2
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
Krónan ætlar að frysta verð á 647 vörum fram að áramótum til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heim...
Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg - Vísir
Alls bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð Borgarverks það eina undir áætluðum verktakakostnaði og munaði þar 376 milljónum króna. Næstlægsta boð ...
Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda - Vísir
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Málið kom á borð ákæranda þann 14. september og er hans hlutver...
Björgunarsveitir aðstoða á Hvolsvelli og Hellu
📅 24.09.2026 👁️ 3
Björgunarsveitir aðstoða á Hvolsvelli og Hellu
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa sinnt nokkrum fjölda útkalla vegna fjúkandi lausamuna á Hvolsvelli og Hellu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrú...
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
📅 24.09.2026 👁️ 4
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
Sylvester Stallone hefur tjáið sig umfang deilunnar við Arnold Schwarzenegger, sem stóð yfir í meira en tvo áratugi. Einhverjir hafa talið að deilan h...
Kengúrur á flótta á Jótlandi
📅 24.09.2026 👁️ 4
Kengúrur á flótta á Jótlandi
Vegfarendur í Give á Jótlandi eru beðnir um að sýna aðgát af æði sérstökum ástæðum. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að lögreglunni á Jótlandi haf...
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
📅 24.09.2026 👁️ 4
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins Banda­rísk­ur al­rík­is­dóm­ari hef­ur fyr­ir­skip­að Trump-stjórn­inni að hleypa frétta­mönn­u...