Í svari upplýsingafulltrúa Petoro við fyrirspurn sem Austurfrétt sendi fyrirtækinu eftir fund sem Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð hélt í febrúar um olíuleit á Drekasvæðinu, kemur fram að eins og mál standi hafi olíufélagið ekki uppi áform um frekari leit á svæðinu.
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Dreka kolvetnis, var frummælandi á fundinum í febrúar og lýsti þar yfir áhuga Petoro á frekari rannsóknum og tilraunaborunum að fengnu leyfi íslenskra stjórnvalda.
Félagið hafnar þessu hins vegar í svari sínu til Austurfréttar auk þess sem þar kemur fram að frekari þátttaka fyrirtækisins í verkefnum á íslensku yfirráðasvæði ráðist af ákvörðun norskra yfirvalda.