Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Rannsókn á innbrotinu stendur nú yfir. Geir Gunnar segir að búið sé að ná tökum á ástandinu, búið sé að reka öll svín inn. Von sé á tilkynningu frá fyrirtækinu um málið.
Síðast var brotist inn hjá Stjörnugrís í maí síðastliðnum og svínum sleppt. Skemmdarvargarnir skildu í það skiptið eftir svokallaða stefnuskrá á vettvangi.
Í júní var brotist í Reykjabú og hænum sleppt. Var samskonar yfirlýsing skilin eftir á vettvangi. Í lok júlí var svo brotist inn í Dalsbú og hundruðum minka sleppt út í náttúruna.
Fréttin verður uppfærð.