Stýrivextir Seðlabankans haldast óbreyttir eftir að hafa hækkað síðustu þrjá stýrivaxtaákvörðunardaga fyrir daginn í dag.
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að stýrivextirnir verði áfram 8,00 prósent. Nefndin var einróma um þessa ákvörðun sína.
Mikil verðbólga en hjaðnar hratt á næsta ári
Í tilkynningu Seðlabankans segir að verðbólga hafi ekki verið meiri í tvö ár en að flest bendi til þess að hún hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári.
„Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega 4% um nokkra hríð,“ segir í tilkynningu bankans.
„Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.“
Höfðu hækkað þrisvar í röð
Stýrivextir höfðu hækkað þrisvar í röð fyrir stýrivaxtaákvörðunina í dag og fóru síðast í 8,00 prósent. Þeir höfðu því hækkað um 0,75 prósentustig frá því í febrúar þegar vextirnir voru 7,25 prósent. Þeir fóru á síðustu árum mest í 9,25 prósent 2023 og 2024.
Breiðfylkingin, sem er samflot Starfsgreinasambands Íslands, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar, komst í gær að samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að segja ekki upp kjarasamningum. Meginþáttur í þeim er að reyna að halda vöxtum og verðbólgu niðri.
Fulltrúar VR og fagfélaganna ræða við SA í dag. Ekki er ljóst hvort samkomulag næst þeirra í milli áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út á morgun.
Fréttin hefur verið uppfærð.