Stýrivextir áfram átta prósent
Seðlabankinn breytir ekki stýrivöxtum. Verðbólga hefur farið hækkandi en ekki lækkandi. Peningastefnunefnd segir að tekið sé að hægja á efnahagsumsvifum en mæld og undirliggjandi verðbólga sé enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar.
Seðlabankinn hækkar hvorki né lækkar stýrivexti, sem ákvarða vaxtastig í landinu, og haldast þeir í átta prósentum. Peningastefnunefnd bankans tilkynnti þetta í morgun. Verðbólga mælist enn of há sem og verðbólguvæntingar, jafnvel þó farið sé að hægja á efnahagsumsvifum.
Verðbólga mælist nú 5,9 prósent og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Hún hefur aukist enn frekar frá því í sumar, líkt og nefndin hafði búist við.
Nefndin rekur aukninguna fyrst og fremst til áhrifa stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkunar opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega …