Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni en verðbólga mældist 5,9% í september. Fram kemur í tilkynningu að frá því að síðasta ákvörðun nefndarinnar var tekin hafi verðbólgan aukist um 0,6 prósentustig sem rekja megi að mestu leyti til hækkunar á eldsneyti. Eldsneytisverð hefur hækkað á heimsmarkaði vegna átakanna við Persaflóa og nú byrjun september var tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hér á landi felld niður.
Stýrivextir áfram 8%