Jarðskjálfti af stærð 4,1 mældist við Nesjavelli nú 36 mínútur yfir miðnætti í nótt og fannst vel á suðvesturhorni landsins. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur fylgt minniháttar eftirskjálftavirkni. Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar mældist skjálfti af stærð 4,6 á svipuðum slóðum. Jarðskjálftavirkni er þó algeng á svæðinu.
Stór skjálfti á Nesjavöllum í nótt