Stoltir Íslendingar

Stoltir Íslendingar

Stoltir Íslendingar

Stoltir Íslendingar

„Ég er ótrú­lega stolt af sjálf­stæði Ís­lands og þeim ár­angri sem við höf­um náð sam­an sem þjóð.“

„Það er engin þörf á að laga Ísland,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Þingvetur var að hefjast og þingmenn stigu í pontu, hver á fætur öðrum, með söluræðuna. Stjórnarandstaðan um hversu óhæf ríkisstjórnin er og stjórnin um hversu mikið hefur áunnist á þessum tveimur árum sem liðin eru frá því að hún tók við völdum.

„Hvað hefur dunið á landsmönnum frá því að þessi ríkisstjórn tók við?“ þrumaði þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jens Garðar Helgason, yfir þingsal: „Skattahækkanir, skattahækkanir og aftur skattahækkanir.“

Hér væri búið að boða skatta á ferðaþjónustu og banka. „Hækkun bankaskatts mun þrýsta upp vöxtum.“

Á síðasta ári var samanlagður hagnaður bankanna þriggja nærri 94 milljarðar króna. Sterk staða bankanna hefur ekki skilað almenningi betri kjörum. En þingmaður Sjálfstæðisflokksins varpaði ábyrgðinni af bönkunum og yfir á ríkisstjórnina. Það væri ekki hægt að ætlast til þess að almennir borgarar herði sultarólina. Ríkið gæti gert það:

„Formaður Flokks fólksins er enn þá með VISA-kortið og er enn að eyða um efni fram.“

Formaður Flokks fólksins er mennta- og barnamálaráðherra. Orð þingmannsins féllu degi eftir að íslenskir nemendur fengu falleinkunn í alþjóðlegum samanburði.

Börn eiga ekki að bíða 

„Ég er ótrúlega stolt af sjálfstæði Íslands og þeim árangri sem við höfum náð saman sem þjóð.“

Ung kona situr fyrir svörum á TikTok-síðu Áfram Íslands.

Ísland er stundum land þversagna. 

Samfélag sem ber sér á brjóst vegna árangurs – en getur ekki – eða tímir ekki – að tryggja börnum leikskólapláss, ásættanlega grunnskólamenntun, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og viðeigandi úrræðum ef vandi steðjar að.

„Það hvernig samfélag kemur fram við börn sín endurspeglar sál þess

Í ræðustól Alþingis gerði heilbrigðisráðherra, Alma Möller, orð Nelsons Mandela að sínum: „Það hvernig samfélag kemur fram við börn sín endurspeglar sál þess.“

Hún kvaðst hafa tekið þátt í kosningum um orð ársins við síðustu áramót og kosið orðið: „Innviðaskuld.“ Og ekki að ástæðulausu.

Eftir að hafa þulið upp helstu áskoranir í heilbrigðiskerfinu, þar sem vantar meðal annars um 200 heimilislækna, beindi hún sjónum sínum að stöðu barna og ungmenna. „Eitt mikilvægasta og arðbærasta verkefni hvers samfélags er að hlúa að börnum því þau eru framtíð þjóðar og fjársjóður. En það eru blikur á lofti.

Fleiri börn greina frá depurð, kvíða og einmanaleika. Við sjáum líka hegðunarvanda, ofbeldi og fíkn,“ sagði hún.

Svo bætti hún við: „Börn eiga ekki að bíða eftir þjónustu.“

Að fæðingarorlofi loknu

Bið eftir þjónustu hefst strax á fyrstu mánuðum barna.

Oft er talað um fæðingarorlof sem eitt mikilvægasta skref sem hefur verið stigið í jafnréttisbaráttunni. Vandinn er bara sá að að fæðingarorlofi loknu er ekkert tryggt sem tekur við.

Hægt er að leita til sjálfstætt starfandi dagforeldra sem taka við börnum frá sex mánaða aldri. Starfsemin fer almennt fram í heimahúsi þar sem aðstæður eru misgóðar. Í Reykjavíkurborg er gerð krafa um þriggja fermetra rými fyrir hvert barn á heimilinu, hvíldaraðstöðu og útivistaraðstöðu. Á landsvísu er ekki gerð krafa um útiaðstöðu en tekið fram að það sé „æskilegt“.

Aðgengi að þessari þjónustu er ekki tryggt og biðlistar geta verið langir. Samkvæmt opinberum lista borgarinnar er sem stendur laust pláss hjá einni dagmömmu í Vesturbæ, einni í miðbænum en ekkert laust í Laugardal, Hlíðunum eða Grafarvogi.

Til að öðlast réttindi sem dagforeldri þarf að ljúka 70 klukkustunda námskeiði í fjarnámi. Það eru menntunarkröfurnar sem gerðar eru til dagforeldra sem bera ábyrgð á andlegri og líkamlegri velferð barna.

Í borginni geta dagforeldrar leitað til daggæsluráðgjafa á þjónustumiðstöðvum, þeir fá einn starfsdag frá Reykjavíkurborg á ári og þrjár heimsóknir frá eftirlitsaðilum. Ef dagforeldrar veikjast, þurfa að sinna eigin börnum eða erindum, hleypur enginn í skarðið. Foreldrar eru heima með börnin.

Líf leikskólabarna 

Við átján mánaða aldur er miðað við að börn hafi fengið leikskólapláss.

Árið 2018 var ráðist í átak í leikskólamálum í Reykjavík. Síðan hafa leikskólar verið stækkaðir, nýir opnaðir og sjálfstætt starfandi leikskólar fengið rekstrarleyfi. Þannig hafa orðið til 1.300 ný pláss. Samt eru 380 börn, 12 mánaða og eldri, á biðlista.

Leikskóladeildum og jafnvel heilu leikskólunum hefur verið lokað vegna raka, myglu eða skemmda. Í vetur voru 600 leikskólapláss ónýtanleg vegna viðhalds. Ekki verður innritað í fjóra leikskóla á árinu vegna framkvæmda.

Tveimur árum eftir að leikskólinn Brákaborg flutti í nýtt húsnæði komu í ljós alvarlegir byggingargallar. Börnin voru flutt í gamalt skrifstofurými í Ármúla á meðan ráðist var í endurbætur. Um áramót var heildarkostnaður við leikskólann kominn upp í 3,2 milljarða.

Húsnæðið er aðeins hluti vandans. Skortur á starfsfólki hefur gert það að verkum að börn eru send heim hluta dags eða haldið heima heilu dagana. Á síðasta ári hafði það áhrif á 3.900 leikskólabörn í borginni.

Það vantar ekki bara starfsfólk, það vantar fagmenntað starfsfólk. Á síðasta ári vantaði 2.496 kennara til að uppfylla lagalegar skyldur sem kveða á um að 67 prósent þeirra sem sinna uppeldi barna á leikskólum hafi leyfisbréf. Formaður Félags leikskólakennara hefur bent á einfalda leið til úrbóta: Laun leikskólakennara þurfa að vera samkeppnishæf við aðra sérfræðinga og starfsumhverfið spennandi.

„Reykjavíkurborg kallar eftir áhugasömum fyrirtækjum til að hefja rekstur leikskóla eða daggæslu á vinnustað

Lausn borgarinnar birtist í auglýsingu frá borginni fyrr í vikunni: „Reykjavíkurborg kallar eftir áhugasömum fyrirtækjum til að hefja rekstur leikskóla eða daggæslu á vinnustað.“

Áður hefur verið bent á að þessi stefna sé til þess fallin að innleiða mismunun og stéttaskiptingu í menntakerfið. „Hvernig væri umræðan ef Alvotech og Arion banki hygðust stofna grunnskóla?“ spurði formaður Félags leikskólakennara, Haraldur F. Gíslason.

Hann sagði fæsta nálgast vandann með lykilspurninguna að leiðarljósi: Hvað er best fyrir börnin?

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur hins vegar bent á að vinnustaðaleikskólar geti leyst annan vanda: „Ég hef heyrt í nokkuð mörgum fyrirtækjum sem gætu hugsað sér annað eins, sem eru bara í vandræðum með að fá starfsfólk til baka eftir fæðingarorlof.“

Harmi sleginn ráðherra

Í síðustu viku fundust skordýr í hádegisverði leikskólabarna í sex leikskólum. Fyrirtækið að baki matarsendingunum hagnaðist um 274 milljónir í fyrra.

Fyrir tveimur árum veiktust um 50 börn af E. coli-sýkingu vegna ófullnægjandi meðferðar matvæla í leikskólanum Mánagarði. Matráðurinn hafði hvorki fengið menntun né fræðslu um öryggi matvæla. Tólf börn voru lögð inn á spítala. Fimm lentu í lífshættu.

Í vor sagðist mennta- og barnamálaráðherra vera harmi slegin yfir fjölda tilkynninga vegna meintra ofbeldisbrota starfsmanna leikskóla gagnvart börnum. Sex tilvik höfðu komið upp það sem af var ári þar sem grunur lék á að brotið hefði verið á börnum.

„Það þarf að gera einhverja stórkostlega bragarbót til að reyna að koma í veg fyrir eins og kostur er að svona sé að gerast ítrekað,“ sagði Inga Sæland.

Geta grunnskólabarna 

Skólaskylda hefst sex ára.

Ein leið til að meta hvernig íslenska skólakerfinu tekst til er PISA-könnunin. Hún mælir meðal annars getu nemenda til að skilja og meta texta, beita stærðfræðilegri rökhugsun og takast á við vísindalegar upplýsingar og hugmyndir.

Niðurstöðurnar voru áfall.

Alls búa 44 prósent nemenda í 10. bekk ekki yfir grunnfærni í lesskilningi og 38 prósent ekki yfir grunnfærni í stærðfræði- og vísindalæsi. Um 28 prósent, eða 1.148 nemendur, ná ekki grunnfærni á neinu þessara sviða.

Á tíu árum hefur Íslandi farið meira aftur en samanburðarlöndum. Fyrir áratug náðu 78 prósent nemenda grunnhæfni í lesskilningi. Nú eru þeir 58 prósent.

Staða nemenda af erlendum uppruna er enn verri. Aðeins 28 prósent þeirra búa yfir grunnhæfni í lesskilningi.

Á sama tíma virðist skólakerfið ekki heldur ná að rækta hæfileika þeirra sem standa sterkast. Aðeins um tvö til fjögur prósent íslenskra nemenda ná afburðahæfni, færri en á öðrum Norðurlöndum og í flestum OECD-ríkjum.

Myglaðir skólar

Á lista 73 landa er Ísland í fimmta sæti yfir þau lönd sem greiða mest með hverjum nemanda.

Samt hefur aðeins fjórðungur þeirra kennara sem kenna grunngreinar PISA sérhæfingu á sínu sviði. Sérstaklega fáir hafa sérhæfingu í náttúruvísindum. Íslenskir nemendur upplifa færri vitsmunalegar áskoranir í náttúruvísindakennslu en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum og takmörkuð tækifæri til vísindalegrar rökræðu og rannsóknarvinnu. Aðstaða til náttúruvísindakennslu er víða ófullnægjandi og aðgengi að viðeigandi kennslurými, búnaði og stuðningsumhverfi takmarkað.

Það þarf kannski engan að undra að ekki sé hægt að koma upp almennilegri aðstöðu til vísindarannsókna þegar ekki er einu sinni hægt að sinna viðhaldi. Á síðasta áratug hefur mygla fundist í Ártúnsskóla, Brekkuskóla, Fossvogsskóla, Grundaskóla, Hagaskóla, Kársnesskóla, Kleppjárnsreykjum, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla, Laugarnesskóla, Lundarskóla, Nesskóla, Oddeyrarskóla, grunnskólanum á Suðureyri, Varmárskóla, Valhúsaskóla, grunnskólanum á Þórshöfn og í Ölduselsskóla. Upptalningin er ekki endilega tæmandi.

Í Hagaskóla féll kennsla í 9. bekk niður um tíma, nemendum var síðan þvælt um hverfið áður en þeim var komið fyrir í gömlu skrifstofurými í Ármúla.

Alveg eins og leikskólabörnunum.

Lítil trú nemenda 

Á meðan er tekist á um hvaða einkunnakerfi eigi að nota.

„Eins og þruma úr heiðskíru lofti.“ Þannig lýsti formaður Félags grunnskólakennara ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra um að breyta einkunnagjöf úr bókstöfum í tölustafi.

Ekkert samráð hafi verið viðhaft og í upphafi skólaárs þurfi skyndilega að setja af stað innleiðingarteymi í hverjum einasta skóla sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í mönnun og skipulagi. Á sama tíma væri niðurskurður í Miðstöð menntunar og þjónustu, þaðan sem stuðningur hefði annars átt að berast.

Í niðurstöðum PISA-skýrslunnar er einmitt varað við þessu. Óstöðugleiki og sífellt nýjar áherslur grafi undan trausti fagfólks á aðgerðum stjórnvalda. Ein helsta áskorunin sé að skapa samfellu og langtímahugsun í menntamálum.

Eitt af því sem mælt er í könnuninni er vaxtarhugarfar – sú trú að hæfni og greind séu ekki föst heldur mótanleg með áreynslu, námi og árangursríkum aðferðum. Um 62 prósent íslenskra nemenda eru ósammála því. Íslenskir nemendur hafa eitt veikasta vaxtarhugarfarið meðal þeirra þjóða þar sem það er mælt. Þeir hafa litla trú á eigin getu í vísindum og sú trú hefur farið minnkandi.

Helmingur íslenskra unglinga lýsir jafnframt því viðhorfi að hafa eigi almenna skynsemi að leiðarljósi fremur en vísindarannsóknir.

Ógnin hér heima

Þegar ungur maður var spurður af hverju hann ætlaði að svara neitandi í þjóðaratkvæðagreiðslunni sagði hann: „Óupplýst fólk er að reyna að sannfæra mig um að skoða samning. En þetta er rándýr skoðun.“

Skynsemin sagði nei. 

„Við getum þetta sjálf,“ segir formaður Sjálfstæðisflokksins. 

Hún hefur rétt fyrir sér. Íslendingar geta leyst þann vanda sem þeir standa frammi fyrir. Lausnirnar er ekki alltaf að finna erlendis heldur í breyttri forgangsröðun og gildismati.

Með orðum sínum var Guðrún Hafsteinsdóttir ekki að vísa til stöðu barna á Íslandi. Reyndar beindu fæstir þeirra sem stigu í pontu við upphaf þingvetrar sjónum að börnum og ungmennum – degi eftir að niðurstöður PISA lágu fyrir.

„Við munum hvergi hvika frá því að verja samfélagið okkar með öllum tiltækum ráðum gegn allri ógn sem að okkur kann að steðja

Inga Sæland varaði einnig við ógnum að utan: „Við munum hvergi hvika frá því að verja samfélagið okkar með öllum tiltækum ráðum gegn allri ógn sem að okkur kann að steðja.“

Ógnir koma ekki aðeins að utan. Það er ógn við samfélag þegar nemendur útskrifast úr grunnskóla án þess að geta lagt mat á trúverðugleika, hugsað gagnrýnið og tekið upplýstar ákvarðanir.

„Kerfinu þarf að breyta og kerfinu verður breytt,“ lofaði ráðherra. 

Ógnin hér heima

Um leið þarf að tryggja börnum aðgengi að heilbrigðisþjónustu og viðeigandi úrræðum. 

Sífellt fleiri börn upplifa kvíða, depurð og einmanaleika. Um 40 prósent barna í 10. bekk upplifa depurð og 50 prósent upplifa kvíða vikulega eða oftar. Þau leita misjafnra leiða til þess að takast á við vanlíðan. 

Í febrúar voru 8.855 börn á bið eftir þjónustu og úrræðum á vegum opinberra aðila. Skaðinn sem getur af því hlotist er vel þekktur.

Á sama tíma hafði 321 mál komið til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu árið 2025 vegna kynferðis- eða ofbeldisbrota gagnvart börnum og 205 mál þar sem sakborningar í kynferðis- eða ofbeldismálum voru ólögráða. Hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu var 601 mál til meðferðar sem vörðuðu börn.

Alma Möller hélt áfram ræðu sinni: „Við verðum að ráðast að rótum vandans og snúa þróuninni við.“

Nú er hún í stöðu til þess. 

#stoltir #íslendingar


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27253/stoltir-islendingar/

📰 Aðrar fréttir

Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
Hönnuðir og listamenn stigu á stokk og kynntu það sem þeir höfðu aðallega verið að fást við að undanförnu í sinni sköpun. Mikið var um hlátrasköll og ...
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
📅 29.10.2026 👁️ 1
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
Fulltrúar meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í umhverfis- og skipulagsráði fagna hugmyndum um að byggð verði blönduð byggð ofan á bílastæði í Ármúl...
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
Tæplega 71 prósent Íslendinga nota gervigreind til að afla sér frétta. Karlar eru líklegri til þess að gera það oftar en konur.Þetta er niðurstaða kön...
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
Nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í dag við Ilulissat, þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður ekki síst f...
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
📅 29.10.2026 👁️ 1
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
The prime minister did not outline a timetable, while opponents questioned the Budget's lack of detail on welfare reform.
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
Sveitarfélög á Suðurlandi krefjast þess að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og segja að með nýjum álögum...
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Almannaróm. Af þeim sem nýta sér gervigreind á íslensku kjósa tæp 89 prósent þeirra að not...
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
Melkorka greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram-hringrás sinni í gær. „Eftir að hafa hugsað málið fram og til baka vildi ég tilkynna að ég er ...
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína...
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
📅 29.10.2026 👁️ 2
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
Bandaríski gamanmyndaleikarinn Jon Lovitz hefur svarað ásökunum Crystal Harris, ekkju Playboy-stofnandans Hugh Hefner, um að hann hafi verið einn mest...
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
📅 29.10.2026 👁️ 2
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
Það er mikill sigur fyrir heilbrigða skynsemi að Syddanmark-hérað skuli nú loksins hafa fellt tillöguna um hina mjög umdeildu LGBTQ+ handbók með atkvæ...
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13, segir að hann hafi veist að konunni með ofbeldi og reynt að svipta ha...
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
📅 29.10.2026 👁️ 2
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
From Sunday anyone weighing more than 19st 7Ib (124kg) will be banned from flying to an offshore platform.
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
📅 29.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
The defeated presidential candidate says he will lead the opposition from the US.
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
Hvorug stærstu flokkablokkanna í ísraelskum stjórnmálum hefur tryggt sér meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem haldnar voru á þriðjudag. Flokkur fo...
Verðbólgan enn „óþægilega há“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Verðbólgan enn „óþægilega há“
Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið. Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við Háskól...
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er nú þannig að fjárhagsstaða bæjarins kallar á miklar aðgerðir. Við þurfum að spara upp undir þrjá milljarða á næsta ári og þetta er liður í því...
Þarft þú meira járn?
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þarft þú meira járn?
Þarft þú meira járn? Fréttin29. október 2026Heilbrigðismál, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Er járnið í líkamanum of lágt þrátt ...
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík. Uppskriftin á...
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
Elín greindi frá tímamótunum með færslu á samfélagsmiðlinum Instagram, þar sem hún er með tæplega tólf þúsund fylgjendur.  „Mánaðarævintýri í Vestur-Á...
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
📅 29.10.2026 👁️ 3
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: M...
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
📅 29.10.2026 👁️ 3
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
Að minnsta kosti þrettán týndu lífi í dag þegar þrýstiloftsknúinn rússneskur árásardróni skall á lestarpalli þar sem fjölmenni stóð í borginni Dnípró ...
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
📅 29.10.2026 👁️ 3
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Í tilkynningu frá Haf...
Búið að ákæra son þingmanns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Búið að ákæra son þingmanns
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum til bana. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur.Vísir grei...
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
Samkvæmt könnun Maskínu finnst þremur fjórðu hlutum íslensku þjóðarinnar að Ísland ætti ekki að senda lag til keppninnar ef Ísrael verður á meðal þátt...
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri segir ekkert til í fullyrðingunum um að Hirti J. Guðmundssyni hafi verið sagt upp á Hagstofunni vegna pólitís...
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
Karlmaður sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí hefur verið ákærður í málinu. Frá þessu greinir Vísir en ...
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
📅 29.10.2026 👁️ 3
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
Fyrirtæki á Dalvík lagði fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna mannvirkja og framkvæmda á lóð, þar sem stendur einbýlishús, ...
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
Útlit er fyrir að þrátefli muni myndast aftur í ísraelskum stjórnmálum. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvor...
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
Witnesses say Samir Zitouni is a 'real-life hero' who told attacker "We love you, we can help you".
Kjarasamningar kennara í hættu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Kjarasamningar kennara í hættu
Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem ...
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum Fréttin29. október 2026Hatursorðæða, InnlentLeave a Comment Ummæli...
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
📅 29.10.2026 👁️ 3
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
One of the regions famous rock formations, known as "fairy chimneys", reportedly collapsed outside an open-air museum.
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
Hjörtur greinir frá uppsögninni í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook, Vísir hefur ekki náð af honum tali vegna málsins. Þar greinir hann frá því að f...
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 3
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
A 52-year-old woman needed medical treatment after being pulled to the ground by her hair and beaten during a violent robbery in Puerto de la Cruz, Te...
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
„Þá er minni keppni víst lokið áður en hún hófst almennilega, þar sem ég þurfti að segja mig frá keppninni vegna raddleysis þegar komið var að því að ...
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
📅 29.10.2026 👁️ 3
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
Images of child sexual abuse allegedly belonging to Meghan Markle's father had reportedly been found in his former home in the Philippines.
Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnaraðgerðir. Auk þriðju hrinu uppsagn...
Sonur þing­mannsins á­kærður - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sonur þing­mannsins á­kærður - Vísir
Þetta staðfestir Sigurður Ólafsson saksóknari.  Gæsluvarðhald mannsins rann út þann 22. október og var það framlengt. Sömuleiðis var gefin út ákæra í ...
Repúblikanar ósáttir við að Demókratar bjóði fram nafna síns manns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Repúblikanar ósáttir við að Demókratar bjóði fram nafna síns manns
Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings...
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
📅 29.10.2026 👁️ 3
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings...
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
📅 29.10.2026 👁️ 3
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra og telur að úrræðið hafi ekki brugðist ...
Elliði segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora í strætó af því hann gengur úr Mjóddinni
📅 29.10.2026 👁️ 3
Elliði segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora í strætó af því hann gengur úr Mjóddinni
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora að taka strætó heim af því að vagninn gengur úr Mjóddinni. Hann segir líka...
Allt logar vegna uppsagnar Hjartar: „Þessu verður að mótmæla kröftuglega“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Allt logar vegna uppsagnar Hjartar: „Þessu verður að mótmæla kröftuglega“
Allt logar í athugasemdum eftir að Hjörtur J. Guðmundsson greindi frá því að honum var sagt upp á Hagstofunni. Telja margir að uppsögnin sé af pólitís...
Halloween celebrations cancelled across the Canary Islands following Toledo train tragedy
📅 29.10.2026 👁️ 3
Halloween celebrations cancelled across the Canary Islands following Toledo train tragedy
Halloween celebrations and other weekend events are being cancelled or postponed in parts of the Canary Islands following the tragic train accident in...
„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“ - Vísir
Þekktastur er Stefán Máni fyrir myrkar glæpasögur og hefur fjórum sinnum hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, síðast í fyrra fyrir bókin...
23 sagt upp og þrír endurráðnir
📅 29.10.2026 👁️ 3
23 sagt upp og þrír endurráðnir
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að fækka um 18,6 stöðugildi hjá bænum á næsta ári. Með þessu ætlar bærinn að lækka rekstrarkostnað um 330 millj...
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 13, officials say
📅 29.10.2026 👁️ 3
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 13, officials say
Dnipro regional head Oleksandr Hanzha said at least 10 others were wounded in the attack, including an 11-year-old boy.
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 14, officials say
📅 29.10.2026 👁️ 2
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 14, officials say
At least 14 others were wounded in the attack in the central city of Dnipro, including an 11-year-old boy.
Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar segir að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir...