Stefnir í aðra vaxtahækkun
Verðbólga er þrálát þrátt fyrir kólnun í hagkerfinu. Raunverð húsnæðis lækkar skarpt.
Líklegt er að stýrivextir Seðlabanka Íslands verði hækkaðir 19. ágúst næstkomandi, í þriðja skiptið í röð, að mati greiningadeildar Landsbankans. Ástæðan er að verðbólgan jókst í júlí og mældist 5,3%, langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
Verðbólgan hefur verið þrálát allt frá því að birgðakeðjur röskuðust í Covid-faraldrinum og bólumyndun varð á húsnæðismarkaði eftir miklar vaxtalækkanir Seðlabankans í faraldrinum. Nú er helsti áhrifaþátturinn hækkandi flugfargjöld, sem orsakast ekki síst af stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran í Miðausturlöndum og afleiðingum þess. Þó svo að tímabundin skattalækkun ríkisstjórnarinnar á eldsneyti renni út um komandi mánaðarmót gerir Greiningardeild Landsbankans ráð fyrir lítilli hækkun vísitölu neysluverðs næstu mánuði, vegna áhrifanna af lækkandi flugfargjöldum. Í spánni er gert ráð fyrir að verðbólgan verði komin niður í 5% í október. Það þýðir að höfuðstóll verðtryggðra fasteignalána mun hækka lítið næstu þrjá mánuði, ef úr rætist, eða lækka um 0,08% vegna verðbólguþróunar í ágúst, hækka um 0,16% …