Bílasalan BL ehf. segir starfmann hennar sem var handtekinn í tengslum við stórt fíkniefna- og peningaþvættismál hafa verið leystan tímabundið frá störfum. Í yfirlýsingu til fjölmiðla segir Erna Gísladóttir forstjóri BL ehf. að fyrirtækið eigi enga aðkomu að málinu.
Sex Íslendingar voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Á annan tug handteknir
Lögreglan sagðist í tilkynningu í dag hafa ráðist í húsleitir á nokkrum stöðum í tengslum við rannsóknina og hald lagt á fíkniefni og peninga.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var vel á annan tug manna handtekinn í aðgerðunum í gær, sem meðal annars sneru að skyndibitastað og bílasölunni BL ehf.
Fréttastofa greindi frá því í gær að á meðal hinna handteknu hafi verið þekktir brotamenn - einn þeirra er Atli Freyr Fjölnisson, sem þegar situr í varðhaldi vegna aðildar að Straumsvíkursmyglinu í sumar og var handtekinn á Litla-Hrauni.
Athygli vekur að svo virðist sem málið hafi verið mjög lengi til rannsóknar. Símar hafa verið hleraðir frá því í upphafi árs hið minnsta og samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur rannsóknin líklega staðið frá því á fyrri hluta síðasta árs.
„Enga aðkomu að málinu“
„Vegna aðgerða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fram fóru í gærmorgun, þriðjudag, þar sem fjöldi manns var handtekinn, þar á meðal einn starfsmaður hjá okkur, vill fyrirtækið taka skýrt fram að það, sem slíkt, á enga aðkomu að málinu og býr ekki yfir meiri vitneskju um málavöxtu en þeirri sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum,“ segir í tilkynningu BL ehf.
„Umræddur starfsmaður hefur verið leystur undan vinnuskyldu tímabundið eða þar til mál skýrast frekar til að unnt sé að taka frekari ákvarðanir. Fyrirtækið mun veita lögreglunni alla þá aðstoð sem okkur er unnt að veita og hún kann að fara fram á, en mun ekki tjá sig frekar að svo stöddu.“