Á tólfta tímanum urðu tveir skjálftar 3,8 og 3,3 að stærð með stuttu millibili rétt norðvestur af Þórisjökli.
Fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands að þetta séu stærstu skjálftar sem mælst hafa á þessu svæði frá því í maí 2008.
Tilkynningar bárust Veðurstofunni um að þeir hefðu fundist í Bláskógabyggð. Eftirskjálftavirkni hefur fylgt skjálftunum, sá stærsti um 2,4 að stærð.
Skjálftavirkni tók að aukast á svæðinu snemma í maí á þessu ári og hefur verið nokkuð stöðug síðan.
