Eftirskjálftavirkni hefur fylgt skjálftunum og var sá stærsti um 2,4 að stærð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands en henni bárust tilkynningar um að skjálftar hefðu fundist í Bláskógabyggð.
Skjálftavirkni tók að aukast á svæðinu snemma í maí á þessu ári og hefur verið nokkuð stöðug síðan, að sögn Veðurstofunnar.