Stærðarinnar borgarísjakar lóna nú úti fyrir Hrauni á Skaga á Norðurlandi. Mikið hefur borið á borgarísjökum sem lóna við landið í sumar en þeir berast flestir frá stærðarinnar íseyju sem hefur hringsólað milli Vestfjarða og Grænlands síðustu vikur.
„Þessi er svolítið flykki, hún er fimm kílómetrar að lengd þannig þetta er enginn smá jaki,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og hafíssérfræðingur við Háskóla Íslands.
Íseyjan hefur lent í hverjum hvirflinum á fætur öðrum og hefur því mikið af ís brotnað úr henni og borist til landsins.
„Það hefur meira borið á þessu í sumar en þetta er ekki óvanalegt sem slíkt.“
Róbert Daníel Jónsson íbúi á Blönduósi náði myndum af borgarísjökunum í vikunni. Sjón er sögu ríkari.
Brýnir fyrir fólki að halda sig fjær jökunum
Ingibjörg segir það vera varasamt að sigla nálægt jökunum, þá geti þeir fljótt hvolft sér með miklum látum.
„Það er bara mikilvægt að brýna fyrir fólki að fara ekki nálægt þeim, þeir bráðna undir sjávarborðinu og þá eru þeir mjög fljótir að snúa sér.“
Þrátt fyrir að meira hafi borið á ísjökum en áður er þó ekki meiri hætta á komu ísbjarna til landsins. Ingibjörg segir þó að alltaf sé möguleiki á að ísbirnir fljóti með en að þeir séu ekki endilega að fá far með borgarísjökunum á nýjar slóðir.
„Þeir fylgja oft ísrendum á vorin en hafa oftast komið upp á ísjaka vegna þess að þeir hafa lent í einhverjum vandræðum.“