Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir gott að Mosfellsbær sé farinn að bregðast við athugasemdum félagsins vegna óvissu um starfsaðstæður fólks sem sinnir þrifum hjá bænum. Hún segir þó að meira þurfi til. Staðan er að hennar mati til skammar.
Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean. Efling hefur undanfarið krafist þess að bærinn afhendi sér gögn svo stéttarfélagið geti fylgst með því að farið sé eftir lögum og kjarasamningum við þrif hjá bænum.
Sólveig Anna segir skoðanir félagsins hafa leitt í ljós að ekki sé farið að þeim og að fulltrúar bæjarins hafi neitað að afhenda gögnin.
„Þetta er staðan og hún er að mínu viti til skammar fyrir þau sem fara með völd í Mosfellsbæ,“ segir hún.
Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar sagði í gær að hann vildi eiga góð samskipti og samvinnu við Eflingu. Sólveig Anna segir að þetta sé ekki hennar upplifun. Henni þykja svör hans til Eflingar hafa verið óljós.
Í tilkynningu frá bænum sagði að Mosfellsbær hefði gert kröfu til iClean um að bregðast við ábendingum og gera úrbætur.
„Þetta er auðvitað gott en þetta að sjálfsögðu dugar ekki,“ segir Sólveig Anna.
Innantóm orð þangað til Efling fær að sjá gögn
Hún segir bæinn áður hafa verið í samskiptum við iClean og fengið frá þeim gögn sem staðfestu að allt væri í lagi.
„Þau hafa ekki viljað sýna okkur þessi gögn þannig að við vitum ekkert hver þau eru. Þangað til við fáum að sjá gögnin og getum staðfest að það sé verið að greiða lögbundin lágmarkskjör, ekki verið að láta fólk vinna of mikið á of litlum tíma fyrir of lítil laun, þá eru þetta auðvitað bara innantóm orð.“