Sprengingar og skothríð hafa dunið á Bamako, höfuðborg Malí í dag, þar sem vígahópar hafa hrint af stað að því er virðist samhæfðum árásum víða um landið.
Her landsins segir átök enn standa yfir. Þá vinna varnar- og öryggissveitir við að ná stjórn á ástandinu. Vitni hafa greint frá hörðum átökum, meðal annars við herstöðina Kati í grennd við höfuðborgina. Þar hafa þyrlur sést á lofti og vegum hefur verið lokað.
Tilkynningar um árásir hafa einnig borist í borgunum Gao og Kidal í norðurhluta landsins og í borginni Sevare sem er staðsett fyrir miðju þess. Að mati sérfræðinga gæti árásin reynst sú stærsta af hálfu jíhadista í Malí svo árum skiptir.
Herforingjastjórn komst til valda árið 2020
Bandaríska sendiráðið í Malí hefur hvatt borgara til að halda sig innandyra og bresk stjórnvöld hafa mælt gegn öllum ferðum til landsins. Þá er alþjóðaflugvöllurinn í Bamako sagður lokaður tímabundið.
Óstaðfestar upplýsingar AFP-fréttaveitunnar benda til þess að jihadistahópurinn Jama-at Nusrat al-Islam wal-Muslimin, sem tengist al-Kaída, og uppreisnarhópar Trúarega kunni að standa að baki árásunum.
Malí hefur glímt við vaxandi óöryggi í meira en áratug. Landinu er stjórnað af herforingjastjórn sem komst til valda í valdaráni árið 2020 og hefur heitið því að bæta öryggi. Stór svæði landsins eru enn utan stjórnvalda.
Mahmoud Ali Youssouf, formaður Afríkusambandsins, hefur fordæmt árásirnar. Í yfirlýsingu varaði hann við þeirri hættu sem átökin sköpuðu fyrir almenna borgara og ítrekaði skuldbindingar sambandsins við stöðugleika og frið.