Frakkar standa í vegi fyrir framlengingu refsiaðgerða Evrópusambandsins gegn Rússlandi. Þeir vilja hlífa nafntoguðum auðmanni til að tryggja frelsi meints njósnara í Aserbaídsjan.
Refsiaðgerðir ESB gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu fela meðal annars í sér að um 3.000 einstaklingar og fyrirtæki eru á svokölluðum svörtum lista sem er uppfærður og staðfestur á hálfs árs fresti. Vera á listanum felur í sér ferðatakmarkanir og frystingu eigna innan landamæra ESB.
Aðildarríkin 27 verða að samþykkja aðgerðirnar einróma. Verði aðgerðirnar ekki framlengdar falla þær úr gildi. Þær átti að framlengja í síðustu viku en ákvörðun var frestað, en þetta er í fyrsta sinn sem gripið hefur verið til þess.
Frakkar neituðu að samþykkja listann nema rússnesk-úsbekíski auðmaðurinn Alisher Usmanov væri fjarlægður af honum. Usmanov, sem er einn ríkasti maður heims, er talinn nátengdur Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Frakkar bera við þjóðaröryggi en talið er að ástæðan sé að þeir vilji hlífa Usmanov til að mýkja stjórnvöld í Tyrklandi, Aserbaídsjan og Úsbekistan. Það væri til að tryggja lausn Martin Ryans, fransks kaupsýslumanns sem var dæmdur í 10 ára fangelsi í Aserbaídsjan fyrr á þessu ári, vegna meintra njósna.
Slóvakía og Lúxemborg hafa líka sett sig upp á móti samþykkt listans í núverandi formi. Lúxemborgarar vilja hlífa öðrum rússneskum auðmanni, Mikhail Fridman, sem stendur í lagaþrefi gegn hertogadæminu.
Ólíklegt er þó talið að ríkin tvö muni sitja við sinn keip ef Frakkland ákveður að samþykkja aðgerðirnar.
Sendiherrar ESB-ríkjanna eiga fund í dag til að freista þess að ná saman um framhaldið, en þrátt fyrir allt er grundvallarsamstaða um framhald á refsiaðgerðunum. Möguleg lending er að auðmennirnir tveir verði teknir út af listanum, en refsiaðgerðirnar verði þess í stað framlengdar um þrjú ár.