Ofurfyrirsætan Cindy Crawford birti einlæga afmæliskveðju til sonar síns, Presley Gerber, tveimur mánuðum fyrir andlát hans.Presley lést aðeins 27 ára gamall á meðferðarstofnun í gær. Hann hafði um árabil glímt við fíkn og geðræn vandamál og hafði hann rætt erfiðleika sína opinskátt síðustu misseri.Presley fetaði ungur í fótspor móður sinnar og hóf fyrirsætustörf aðeins 15 ára gamall. Hann starfaði meðal annars fyrir Dolce & Gabbana og Calvin Klein, var á samningi hjá IMG Models og kom fram ásamt móður sinni í Pepsi-auglýsingu árið 2018.
Birti hjartnæma færslu tveimur mánuðum fyrir andlát hans