Vegfarendur geta ferðast frítt með Strætó á bíllausa deginum á morgun.
Bíllausi dagurinn er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem hófst í síðustu viku og lýkur á morgun. Markmiðið með átakinu er að ýta undir sjálfbærar samgöngur með því að kynna fólki vistvæna, hagkvæma og heilsubætandi samgöngumáta.
Fólk sem ferðast með Strætó á höfuðborgarsvæðinu á morgun þarf ekki að greiða hefðbundið fargjald í tilefni dagsins.