Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að kosningar til rússneska þingsins í gær séu enn eitt áfallið fyrir lýðræði í Rússlandi.
„Ráðamenn þögguðu niður í gagnrýnisröddu, komu í veg fyrir þátttöku eina flokksins sem er á móti stríðinu í Úkraínu og hindruðu alþjóðlegt kosningaeftirlit,“ skrifaði Kallas á samfélagsmiðilinn X. „Yfirbragð lýðræðis er það eina sem eftir er í Rússlandi.“
Kallas sagðist einnig hafa lagt til aðgerðir gegn þeim sem hefðu staðið fyrir því að slíkar sviðsettar kosningar færu fram í hernumdum héruðum Úkraínu.