Starfsleyfi sex lækna felld niður eftir umfjöllun
Embætti landlæknis tók mál 13 lækna til skoðunar í kjölfar rannsóknar Heimildarinnar og erlendra miðla á læknum sem héldu starfsleyfi í einu landi eftir að hafa misst það í öðru. Sex starfsleyfi hafa verið felld niður og eitt takmarkað.
Embætti landlæknis hefur fellt niður starfsleyfi sex lækna og takmarkað leyfi þess sjöunda eftir að hafa tekið til skoðunar mál 13 lækna sem Heimildin spurði embættið um í kjölfar alþjóðlegrar rannsóknar á læknum sem höfðu misst starfsleyfi í einu landi en héldu því í öðru.
Í sjö af málunum 13 var talið rétt að aðhafast. Sex starfsleyfi voru felld niður og eitt takmarkað, samkvæmt upplýsingum sem embættið hefur nú afhent. Í september á síðasta ári fjallaði Heimildin um að læknar sem höfðu misst lækningaleyfi erlendis hefðu getað fengið eða haldið starfsleyfi hér á landi.

Rannsóknin, sem leidd var af OCCRP, The Times í Bretlandi, VG í Noregi og Heimildin tók þátt í ásamt fjölda annarra fjölmiðla, leiddi í ljós minnst sex staðfest dæmi um lækna sem höfðu gilt starfsleyfi á Íslandi þrátt fyrir að hafa …