Íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi er væntanlegur til New York til þátttöku í 81. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem hefst í vikunni. Þótt íranski utanríkisráðherrann verði staddur í Bandaríkjunum bendir ekkert til þess að stríðinu sé að ljúka.
Fox-fréttastöðin hafði nýlega eftir Donald Trump forseta að Íranar skyldu hegða sér almennilega því hann væri að íhuga að sprengja landið í loft upp. Araghchi kemur við í Katar á leið sinni til Bandaríkjanna, að sögn íranskra miðla.