Lögreglu barst tilkynning um aðfinnsluvert háttalag sólbaðsstofugests í Háaleitishverfi í gærkvöld.
Ekki er getið í dagbók lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hverrar náttúru hegðunin var en afbrigðilegt athæfi ungra pilta á svipuðum slóðum reyndist saklaus skemmtun. Allir gengu sáttir brott eftir afsökunarbeiðni.
Mjög ungur og afskaplega kurteis ökumaður var stöðvaður í Mosfellsbæ á vélhjóli sem ekki má vera í umferðinni, frekar en hann sjálfur. Foreldri sótti hann á vettvang. Auk þessa sinntu lögreglumenn tilkynningum um innbrot, grunsamlegar mannaferðir og hávaða auk þess sem þeir höfðu afskipti af ökumönnum fyrir margs konar umferðarlagabrot.