Átján menn grunaðir um morðið á Jovenel Moise forseta Haítí fyrir fimm árum hafa verið fluttir til Bandaríkjanna þar sem þeirra bíða réttarhöld. Um það bil tuttugu þrautþjálfaðir kólumbískir málaliðar ruddust inn á heimili Moise 7. júlí 2021 og skutu hann til bana.
Öryggissveitir forsetans gerðu ekkert til að vernda líf hans. Flestir hinna ákærðu eru úr hópi málaliðanna en þar er einnig að finna Joseph Felix Badio, sem starfaði á spillingarskrifstofu dómsmálaráðuneytis Haítí og er talinn einn höfuðpaura málsins.
Ríkissaksóknari á Flórída segir engu verða til sparað við að tryggja réttlætið, þegar hafi þrír tugir manna verið ákærðir fyrir morðið á Moise og fleiri sé leitað. Utanríkisráðuneyti Kólumbíu sagðist í yfirlýsingu í gær fylgjast náið með flutningi sautján þarlendra ríkisborgara frá Haítí til Bandaríkjanna.
Ekki stæði til að hafa afskipti af máli þeirra, sagði kólumbíska utanríkisráðuneytið, enda félli það undir lögsögu þeirra hæfu yfirvalda landanna sem því tengdust.
Fjórir menn voru sakfelldir fyrir alríkisdómstóli í maí, meðal annars fyrir samsæri um að ræna eða myrða Moise, leynimakk um liðsinni við það og brot gegn bandarískum lögum um hlutleysi með þátttöku í ólögmætri hernaðaraðgerð erlendis.
Allir tengdust þeir einkaöryggisfyrirtækinu CTU, sem hefur höfuðstöðvar í Miami. Alls hafa ellefu hlotið dóma í Bandaríkjunum fyrir aðild að morðinu. Bandarískir dómstólar hafa lögsögu yfir samsærum sem skipulögð eru þar í landi.
Mikil upplausn hefur ríkt á Haítí frá því Moise var myrtur og þar er enginn forseti við völd sem stendur. Yfirvöld hyggjast efna til þing- og forsetakosninga 13. desember í fyrsta skipti síðan 2016 ef öryggisaðstæður leyfa.
Glæpagengi ráða yfir 80 hundraðshlutum höfuðborgarinnar Port-au-Prince, sem stunda ofbeldisglæpi á borð við mannrán þar sem krafist er lausnargjalds, vopnuð rán og bílþjófnaði.
Ekki mun takast, eins og til stóð, að fullmanna fjólþjóðlegar öryggissveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna sem liðsinna eiga lögreglu í glímunni við gengin áður en október gengur í garð.