Presley Gerber, sonur ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford og athafnamannsins Rande Gerber, er látinn, aðeins 27 ára að aldri.Presley, sem sjálfur starfaði meðal annars sem fyrirsæta, hafði um árabil glímt við fíkn og geðræn vandamál og hafði hann rætt erfiðleika sína opinskátt síðustu misseri.Daily Mail greinir frá þessu en samkvæmt upplýsingum frá dánardómstjóra Los Angeles-sýslu lést Presley í gær á meðferðarstofnun. Banamein hans hefur ekki verið gefið upp.
27 ára sonur Cindy Crawford er látinn