Aldrei hafa fleiri kosið um fugl ársins á Nýja-Sjálandi en að þessu sinni. Sigurvegarinn varð lítill svartur fugl í mikilli útrýmingarhættu sem heitir Black robin, sem kannski gæti útlagst húmglóbrystingur upp á íslensku.
Heimkynni þessa smávaxna fugls eru á Chatham-eyjum í um átta hundruð kílómetra fjarlægð frá Suðureyju Nýja-Sjálands. Á níunda áratugnum voru aðeins fimm fuglar eftirlifandi af stofninum, þar af aðeins einn frjór kvenfugl.
Nú á hún 350 afkomendur á tveimur verndarsvæðum. Náttúruverndarsamtök á eyjunum, sem vinna að uppbyggingu þriðja búsvæðisins, hófu mikla kosningaherferð fyrir fuglinn. Á meðfylgjandi myndskeiði má heyra söng hans.
Það borgaði sig því svarti glóbrystingurinn skaut þeirri frægu, ófleygu páfagaukategund kakapó og fálkanum karaearea ref fyrir rass í keppninni um fugl ársins 2026, með næstum fjórðung greiddra atkvæða.
Aðstandendur keppninnar, óháðu náttúruverndarsamtökin Nature and Bird, segja Nýsjálendinga sannarlega hafa sýnt náttúrunni stuðning þetta árið en um það bil einn af hverjum fimmtíu valdi sinn uppáhaldsfugl.
Keppnin er haldin árlega og hefur vakið nokkrar deilur síðasta áratug. Árið 2019 kviknuðu ásakanir um rússnesk afskipti eftir að hundruð atkvæða bárust frá IP-tölum þaðan.
Samtökin töldu flest atkvæðin gild og sögðu þau engu hafa breytt um sigur hoiho-mörgæsarinnar, eða gulfjaðramörgæs. Fjórum árum síðar var talið að hvatning grínistans Johns Oliver hefði orðið til þess að vatnafuglinn puteketeke, toppgoði, bar sigur úr býtum.