Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Gufudalssveit síðan 2019. Aðeins ein brú er eftir til að ljúka verkinu sem hefur verið bæði seinlegt og kostnaðarsamt.
Framkvæmdir á Vestfjarðavegi nr. 60 hafa tekið lengri tíma og kostað meira en gert var ráð fyrir. Gylfi Ólafsson, formaður Fjórðungssambandsins, segir tafir leiðinlegar því verkefnið sé mikilvægt.
„Með þessari brú klárast vegur fyrir tvo firði og eitt fjall. Sú framkvæmd nýtist ekki fyrr en brúin er komin á. Það er búið að verja mjög miklum peningum í að þvera firðina en það á eftir að klára þessa brú og það þarf bara að gerast sem fyrst.“
Árið 2019, þegar Vegagerðin réðst í vegabætur í Gufudalssveit, stóð til að verkinu yrði lokið fyrir árslok 2023. Í vetur kynntu stjórnvöld drög að samgönguáætlun þar sem fram kom að verklokin yrðu ekki um þessi áramót heldur næstu. Verklokum hefur síðan þá verið frestað aftur en nú stendur til að síðasta brúin og frágangurinn á veginum verði búin á haustmánuðum 2028.
Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að 7,2 milljörðum yrði varið í verkið. Í lok síðasta árs var kostnaðurinn kominn í tæpa níu milljarða og í drögum að samgönguáætlun var gert ráð fyrir að rúma fjóra milljarða þyrfti í viðbót til að ljúka verkinu.
Bjóða átti síðustu brúna út um áramótin. Það tafðist og auglýsing um útboðið var birt í byrjun júní. Þá stóð til að útboðið stæði til 14. júlí. Opnun tilboða hefur verið frestað sömuleiðis en er nú áætlað í lok mánaðar.
Enn eitt árið sem fólk er sent upp á fjallveg
„Þetta er bara enn eitt árið þar sem við erum að senda fólk upp á fjallveg sem er með 20 kílómetra hámarkshraða á köflum, þannig að það er ekki gott,“ segir Gylfi.
Árstíðasveiflan í ferðaþjónustu er einna mest á Vestfjörðum.
„Við höfum notið stuðnings sko þvert á flokka og þvert yfir kjörtímabil að fara í þessa stóru áfanga, dýrafjarðargöng, Dynjandisheiði og þessar þveranir á suðurfjörðunum og þess vegna er leiðinlegt að það skuli tefjast enn þá frekar,“ segir Gylfi.
Þegar framkvæmdunum lýkur þurfa ökumenn ekki lengur að þræða malarvegina um firðina né að keyra yfir Ódrjúgshálsinn. Leiðin verður bæði greiðfærari en líka öruggari og bundin slitlagi alla leið.
„Og þá eru komnar forsendur fyrir því að hringvegur eitt nái alla leiðina til Ísafjarðar,“ segir Gylfi.
Kostnaður innan eðlilegra vikmarka
Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs hjá Vegagerðinni, segir verkefnið stórt og flókið en að almennt hafi gengið vel. Hann segir kostnað við uppbygginguna innan eðlilegra vikmarka.
„Kostnaðaráætlun í verkinu hefur almennt staðið vel, þær tölur sem eru nefndar hér, 7,2 milljarðar, eru settar fram á verðlagi ársins 2019. Þannig að 7,2 milljarðar árið 2019 eru kannski 11 til 12 milljarðar í dag.
Guðmundur segir að síðasta útboðið verði opnað eftir tíu daga og búist er við verklokum eftir um tvö ár.