Formaður nýs fagráðs um öryggismál á Sólheimajökli fagnar því að ferðaþjónustufyrirtæki vinni saman til að tryggja öryggi allra. Veðurstofan varaði við hættulegum aðstæðum við jökulinn í sumar.
Fagráðið er samstarfsvettvangur fyrirtækja sem starfa á jöklinum. Markmiðið er að auka öryggi ferðamanna og bæta upplýsingamiðlun og samvinnu fyrirtækjanna. Ákveðið var að stofna fagráðið eftir að varað var við hættulegum aðstæðum við jökulinn í júlí.
Stephan Mantler, formaður fagráðsins, segir að aðstæðurnar á jöklinum séu góðar. Vandamálið hafi verið leiðin upp að og upp á jökulinn frá jökulsárlóninu og meðfram fjallinu. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi farið aðra, lengri og brattari leið að jöklinum í sumar.
„Þessi nýja leið hefur verið notuð í nokkrar vikur og hún hefur reynst mjög vel. Málið er að hún er kannski í lagi núna en um leið og það kemur snjór og hálka, og það er náttúrlega bratt þar, þá þarf væntanlega að hugsa aðeins hvernig er best að útfæra þá leið,“ segir Stephan.
Hann segir að það verði fyrsta verkefni ráðsins að huga að viðbragðsmálum og finna hentuga leið til að koma fólki, sem ekki getur gengið sjálft, af jöklinum.
Stephan fagnar því að fagráð sé stofnað þar sem ferðaþjónustufyrirtæki vinni saman að auknu öryggi ferðamanna.
„Það er best að allir séu á sama bátnum að vinna saman að svona atriðum.“