Nú eru allir og mögulega ömmur þeirra líka á fullu við að undirbúa vindmyllugarða á Íslandi. Það er skiljanlegt. Vindurinn er nokkuð sem við Íslendingar eigum nóg af og hann er mikilvægur orkugjafi á móti vatns- og varmaorku.Orðið á götunni er að ýmsir þeir sem sækjast eftir að fá að reisa og reka vindmyllur falli í þann flokk sem erlendis er gjarnan kallaður kúrekaflokkur! Þetta eru gosar sem sækjast eftir skjótfengnum gróða. Alla jafna skeyta þeir lítið um afleiðingar gróðaævintýrisins á umhverfið eða yfirleitt nokkuð annað.
Orðið á götunni: Landsvirkjun sjái um vindmyllur – ekki kúrekarnir og labbakútarnir