Forseti Alþingis hefur fengið erindi frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að skipuð verði þingmannanefnd til að fjalla um tillögur starfshóps um að jafna vægi atkvæða. Hún segir kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu.
„Það er gríðarlega mikill munur á atkvæði kjósenda á Íslandi. Hann er sá mesti í Vestur-Evrópu allri,“ segir dómsmálaráðherra.
Eitt markmiða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er að jafna vægi atkvæða. Starfshópurinn leggur til í skýrslu og frumvarpsdrögum að þingsætum verði fækkað í hverju kjördæmi niður í sex og að samtals 27 þingsæti yrðu jöfnunarsæti.
Jöfnunarsætunum yrði skipt milli kjördæma í réttu hlutfalli miðað við tölu kjósenda á kjörskrá.
Vægi atkvæðis kjósanda er nú mest í Norðausturkjördæmi en minnst í Suðvesturkjördæmi. Samkvæmt núgildandi kosningalögum má misvægið vera tvöfalt, það er, að atkvæði í einu kjördæmi er tvöfalt meira virði en í öðru.
Dómsmálaráðherra leggur til við forseta Alþingis að skipuð verði þingmannanefnd til að vinna úr niðurstöðum starfshópsins
„Mér finnst þetta vera tvö sjónarmið sem vegast á. Annars vegar grundvallarréttinn, hinn heilaga kosningarétt, og að atkvæði manna eigi að vega jafnþungt, að það sé rétt að draga úr þessum mun,“ segir Þorbjörg.
„Ég heyri og skynja og það kemur í rauninni heldur ekki á óvart hver viðbrögð eru með tilliti til byggðasjónarmiða en mér finnst spurningin þar miklu frekar vera hvernig verjum við byggð í landinu. Og ég er ekki þeirrar skoðunar að kosningalögin séu besta verkfæri Alþingis eða stjórnvalda til þess.“
Hvað heldurðu að svona taki langan tíma – viltu slá á eitthvað?
„Ég hef ekki tilfinningu fyrir því hvað svona vinna getur tekið langan tíma. En ég myndi segja að það ætti að vinna með hópnum að það er ekkert nýtt í þessu. Þetta er 170 ára gömul saga. Það blasir við að Ísland sætir ágjöf erlendis frá, frá nefnd Evrópuráðsins um lýðræði, Feneyjanefndinni. En ég sem ráðherra horfi auðvitað til þess að við getum ekki slegið umræðuefni út af borðinu bara vegna þess að þau eru stór.“