Svíþjóð fær sinn fyrsta „sharia-dómstól“

Peter Sweden skrifar:
Fyrsti sjálfskipaði „óháði sharia-dómstóllinn“ er tekin til starfa í Svíþjóð, en þetta gerðist reyndar í fyrra, en lítur nú í dagsljósið.
Um er að ræða gerðardómsþjónustu á vegum einkafyrirtækis þar sem fólk getur valið að láta leysa úr einkaréttarlegum ágreiningsmálum samkvæmt sharia-lögum í stað sænskra laga.
Ef báðir aðilar samþykkja úrlausn mála samkvæmt sharia-lögum geta úrskurðir þessa „sharia-dómstóls“ verið lagalega bindandi samkvæmt sænskum lögum um gerðardóma.
Fólk þarf að greiða gjald fyrir þjónustu fyrirtækisins og málflutningur fer fram fyrir luktum dyrum. Fyrirtækið er nú þegar með starfsemi í bæði Stokkhólmi og Malmö.
Þetta þýðir að hægt er að framfylgja úrskurðum sem byggja á sharia-lögum og senda þá til sænsku fjárnáms- og fullnustustofnunarinnar (Kronofogden), rétt eins og um dóm frá almennum dómstóli væri að ræða.
Stofnandi fyrirtækisins á sér fortíð í miðju-hægriflokknum Moderaterna, en gekk síðar til liðs við fyrrum kommúnistaflokk landsins. Hann yfirgaf þann flokk og gekk í Græningjaflokkinn, en var rekinn úr honum.
Hann starfaði einnig við rekstur fósturheimila, þar sem fyrirtæki hans sérhæfði sig í húsnæði fyrir fylgdarlaus börn á flótta sem komu til Svíþjóðar.
Svíþjóð greiddi fyrirtæki hans um það bil 5.400 dollara á mánuði (miðað við núverandi gengi) fyrir hvert fylgdarlaust barn sem það hýsti.
Sweden gets first self proclaimed "sharia court"
— PeterSweden (@PeterSweden7) September 19, 2026
It's operated by private firm and rulings in civil matters are legally BINDING if both parties consent
People can get their disputes settled under sharia law instead of Swedish law
This would be unheard of just a few years ago https://t.co/yplEsFBdyz