Þá ræða þeir Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, og Trausti Magnússon, verslunarskólanemi, um menntahverfið og hvort eða hvernig það bregðist börnunum.
Þá kemur Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og fyrrum formaður Fjármálaráðs í 10 ár, til að ræða nýsett markmið ríkisstjórnarinnar um hallalausan rekstur ríkisins á næsta ári.
Svo mæta þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingunni og Sigríður Andersen frá Miðflokknum til að takast síðan á um stjórnmálaástandið almennt nú í byrjun vetrar
Þátturinn er á Bylgjunni alla sunnudaga frá klukkan tíu til tólf en hann er einnig að finna hér á Vísi.