Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu á dögunum að ríkisskattstjóri hefði ekki farið rétt að þegar stöður þriggja aðalvarðstjóra voru lagðar niður og fólk ráðið á lægri launum til að sinna sömu verkefnum.
Aðalvarðstjórarnir unnu við tollgæslu á Keflavíkurflugvelli. Þegar ríkisskattstjóra var gert að hagræða í rekstri 2024 og 2025 ákvað hann að leggja stöður aðalvarðstjóra niður. Þessum störfum sinntu einstaklingar með minnst 15 ára starfsreynslu. Því voru allir varðstjórarnir með eins árs biðlaunarétt.
Vildi lækka launakostnað og einfalda skipulag
Ríkisskattstjóri rökstuddi niðurlagningu embættanna með því að lækka þyrfti launakostnað, einfalda skipulag og auka skilvirkni. Hann sagði aðalvarðstjórana hafa sinnt sömu verkefnum og tollsérfræðingar og tollverðir gerðu. Þau verkefni krefðust ekki þeirra háu launa sem aðalvarðstjórarnir fengju greidd.
Þetta gerðist eftir að ríkisvaldið ákvað að Ríkisskattstjóri ætti að hagræða um 305 milljónir króna í rekstri, þar af um 126 milljónir í launakostnað.
Aðalvarðstjórarnir þrír leituðu til umboðsmanns Alþingis eftir að stöður þeirra voru lagðar niður.
Kristín Benediktsdóttir umboðsmaður gerði ekki athugasemd við að ríkisskattstjóri legði embættin niður. Hún fann aftur á móti að því hvernig það var gert. Hún sagði að við útreikninga á sparnaði hefði ekki verið tekið tillit til þess að allir aðalvarðstjórarnir áttu rétt á 12 mánaða biðlaunum. Ekki hefði heldur verið tekið tillit til þess að tollverðir voru ráðnir til að sinna störfum sem aðalvarðstjórarnir sinntu áður.
Gæti bitnað á eldra fólki
Hún sagði að þótt skatturinn teldi ólögmætt og ósæmilegt að færa varðstjórana í lægra sett og verr launuð embætti þá hefði átt að spyrja þá hvort þeim hugnaðist slík tilfærsla. Einn varðstjóranna sótti um stöðu tollvarðar eftir að embætti hans var lagt niður.
Umboðsmaður varaði líka við því að stjórnvöld skiptu út reynslumiklu starfsfólki á góðum launum fyrir nýtt fólk á lægri launum. Hún sagði að það gæti gengið gegn reglunni um að ráða hæfasta fólkið til starfa og falið í sér óbeina mismunun á grundvelli aldurs.