Hér getur stórfjölskyldan teygt almennilega úr sér

Rúmgott sjö herbergja einbýlishús við Burknaberg 12 í Setbergshverfi í Hafnarfirði hefur verið sett á sölu. Ásett verð eignarinnar er 179,9 milljónir króna.
Húsið var reist árið 1989 og er skráð 256,6 fermetrar að stærð. Þar af er tvöfaldur bílskúr um 45 fermetrar. Þá er jafnframt um 80 fermetra óskráð rými á neðri hæð hússins og er heildarstærðin því sögð vera um 336,6 fermetrar þegar það rými er talið með.
Eignin stendur á góðum stað í Setbergshverfi og er henni lýst sem rúmgóðu fjölskylduhúsi sem bjóði upp á ýmsa möguleika. Stutt er í skóla og leikskóla, auk þess sem verslun og helstu stofnbrautir eru skammt undan.
Við húsið er rúmgóð verönd sem snýr í suður og stórt hellulagt bílaplan. Þá er fallegt útsýni frá eigninni.
Athygli vekur þó að í fasteignaauglýsingunni er sérstaklega tekið fram að einstaka myndir hafi verið unnar með gervigreind. Virðist því hafa verið talið nauðsynlegt að láta gervigreindina leggja sitt af mörkum við kynningu hússins, þótt eignin sé bæði rúmgóð, vel staðsett og boðin til sölu fyrir tæpar 180 milljónir króna. Notkun slíkra mynda virðist því, að minnsta kosti við fyrstu sýn, heldur óþörf viðbót við annars hefðbundna fasteignaauglýsingu.