Dómsmálaráðuneytið birti á föstudag drög að frumvarpi til breytinga á refsiákvæðum við vændiskaupum. Þar er lagt til að fangelsisdómur verði lágmarksrefsing við vændiskaupum og að hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni verði þyngd úr tveimur árum í fjögur.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti í sumarbyrjun áform sín um að þyngja refsingar við vændiskaupum. Með því að gera fangelsisdóm að lágmarksrefsingu í stað sektargreiðslu á að koma í veg fyrir að brotum ljúki með lögreglustjórasekt. Þess í stað leiða þau til ákæru ef frumvarpið verður að lögum.
Önnur breyting sem birtist í frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda er þynging hámarksrefsingar vegna kaupa á vændi af barni undir 18 ára aldri. Til stendur að þyngja hana úr tveggja ára fangelsi í fjögur ár. Refsingin á við hvort sem einstaklingur kaupir vændi af barni eða þiggur vændi af barni sem annar greiðir fyrir.
Í frumvarpinu er líka kveðið á um að sá sem þiggur vændi af barni undir 18 ára aldri verði að sæta refsingu hvort sem hann gerði það vísvitandi eða af gáleysi. Refsingin má aldrei fara undir lágmark fangelsis þó að brotið sé framið af gáleysi.