Félag þeirra fréttamanna sem starfa í Hvíta húsinu í Washington (WHCA) krefst þess að Bandaríkjaforseti afturkalli án tafar aðgangsmissi þriggja fjölmiðla að blaðamannafundum þar.
„Bannið er skýlaust brot á fyrsta viðauka stjórnarskrárinnar,“ segir í yfirlýsingu félagsins, sem telur hundruð fréttamanna sem flytja fréttir frá Hvíta húsinu. Samkvæmt ákvæðum viðaukans skal ríkja málfrelsi og fjölmiðlafrelsi í Bandaríkjunum.
Donald Trump forseti sakar miðlana MSNOW, CNN og Politico um að skrifa og flytja falsfréttir. Blaðamenn þeirra miðla bætast í vaxandi hóp fjölmiðlafólks sem ekki fær að stíga fæti inn í Hvíta húsið.
Málaferli standa enn eftir að Trump meinaði blaðamönnum Associated Press um aðgang í fyrra fyrir að neita að nefna Mexíkóflóa Ameríkuflóa. Forsetinn fyrirskipaði nýjasta bannið í færslu á Truth Social á föstudag og hrinti því í framkvæmd í dag, laugardag.
„Fréttamiðlar ættu ekki stöðugt að geta skrifað eða sagt frá SKÁLDSKAP og LYGUM þegar þeir fjalla um forseta Bandaríkjanna, ríkisstjórn Trumps eða Bandaríkin,“ skrifaði Trump og boðaði jafnframt að fleiri miðlum yrði kastað út.