Bandaríski leikarinn Frankie Muniz, sem flestir þekkja úr gamanþáttunum Malcolm in the Middle, segist hafa gengið í gegnum einhverjar erfiðustu vikur lífs síns og náð algjörum botni.Muniz, sem er fertugur, opnaði sig um stöðu sína í einlægri færslu á Instagram í gær, föstudag.„Síðustu sex vikur í lífi mínu hafa verið martröð sem ég bið þess að vakna upp af. Allt hefur verið þungt, óljóst og eins og allt væri að hrynja á sama tíma,“ skrifaði Muniz. „Ég myndi ekki óska neinum þess að ganga í gegnum þetta.“
Leikarinn segist hafa náð botninum: „Síðustu vikur hafa verið martröð“