Hinn 63 ára gamli Greg O´Neill lést í gærmorgun, þann 18. september, eftir að um 2,5 metra langur hvítháfur réðst á hann. Vitni lýstu því hvernig hann flengdist til í sjávarmálinu þegar hákarlinn reif hann til og frá en annar maður sem var á sundi ásamt O´Neill komst lífs af, er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið.
Leit stendur enn yfir
Árásin átti sér stað á vinsælu Sorrento-baðströndinni norður af borginni Perth í Ástralíu en nærliggjandi strendur hafa verið lokaðar síðan í gærmorgun og hafa yfirvöld sagt að þær verði það áfram á meðan leit að hákarlinum stendur yfir.
Samkvæmt staðarmiðlim er um að ræða aðra hákarlaárásina á svæðinu í þessari viku og er þetta sú þriðja sem veldur dauðsfalli í ríkinu á þessu ári. Þá hafi atvikið endurvakið umræðu sem vaknar reglulega í Ástralíu og snýr að því hvernig tryggja megi öryggi strandgesta.
Í frétt BBC er vitnað í yfirlýsingu sem fjölskylda Gregs O'Neill sendi frá sér en þar skrifa þau að að þau séu harmi slegin vegna þessa hræðilega harmleiks.
„Greg elskaði hafið og var þekktur sem mikill sundmaður, íþróttaunnandi, duglegur starfsmaður og almennt örlátur og fyndinn maður.“
Leyfilegt að drepa hákarlinn
Það hafi þegar safnast mikið magn af blómvendi og kertum á vettvangi en fjöldi vitna hefur tjáð sig um þá hræðilegu sjón sem blasti við strandgestum.
Haft er eftir Jackie Jarvis, sjávarútvegsráðherra í Vestur-Ástralíu, að hún hefði tekið það „óvenjulega skref“ að gefa út skipunina um að það mætti veiða og drepa dýrið eftir að hákarlinn sást af lögreglunni á laugardagsmorgun.
Talið sé að þetta sé í fyrsta sinn í tíu ár sem slík skipun hafi verið gefin út á svæðinu en Jarvis hafi einnig greint frá því að notkun dróna og merkinga yrði aukin til að vernda strandgesti.